151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.

24. mál
[11:51]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann kom reyndar inn á eitt mál, raunverulega eigendur, sem er að mörgu leyti mjög gott. Ég tek undir það sem hv. þingmaður sagði hér, að það er eðlilegt að fólk í viðskiptalífinu geti aflað sér upplýsinga um þá sem það á viðskipti við og viti hverjir standa á bak við það. En vegna þess að við erum að tala um einföldun regluverks er ekki alveg hægt að segja að það regluverk sem við bjuggum til í kringum raunverulega eigendur sé einfalt, og með réttu vorum við neydd til þess af alþjóðasamfélaginu, af hinni frægu FATF-nefnd.

Þetta er nú meira báknið sem fylgir raunverulegum eigendum. Ég hygg að flestir þingmenn hafi t.d. fengið að finna fyrir því að bankastofnanir hringja í okkur til að uppfæra einhvern spurningalista, því að við erum auðvitað stórhættuleg sem störfum í stjórnmálum og þar af leiðandi þarf að geyma einhverjar upplýsingar inni í banka um okkur. Ég held að það sé t.d. mjög slæmt dæmi í akkúrat þessari umræðu, því að það er gert til að flækja frekar regluverkið og gera þeim sem starfa erfiðara fyrir. En það er gott að við hv. þingmaður getum verið sammála um mikilvægi þess að einfalda regluverk. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)