tímasett aðgerðaáætlun um einföldun regluverks.
Herra forseti. Ég byrja á að þakka framsögumanni, hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, fyrir mjög góða yfirferð yfir mjög mikilvægt mál, en ég er einn af meðflutningsmönnum þess.
Ég vil kannski byrja á því í upphafi, herra forseti, að koma aðeins inn á þá ræðu sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir flutti hér áðan og verður maður að gera athugasemdir við margt sem hún sagði í sinni ræðu. Hún hrósað þessari tillögu en sagði jafnframt að hugmyndir Miðflokksins um einföldun á regluverki væru innantómar. Ég vil mótmæla því og við sjáum það bara í þessari tillögu að það er Miðflokkurinn sem gengur fram fyrir skjöldu um að flytja hér vandaða tillögu um einföldun regluverks. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi einnig að hér væri um stolnar fjaðrir að ræða þegar Miðflokkurinn væri að tala um að minnka báknið. En það er nú einu sinni þannig að allir þekkja að þetta hugtak eða orðfæri, báknið burt, sem Sjálfstæðismenn stóðu fyrir, eru orðin alger öfugmæli af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Það verður bara að segjast alveg eins og er og er eiginlega aðhlátursefni vegna þess að báknið hefur svo sannarlega vaxið í tíð Sjálfstæðisflokksins svo um munar. Það er ekki langt síðan það kom fram í fjölmiðlum að störfum í opinbera geiranum hefði fjölgað meira en í einkageiranum. Allt er þetta á vakt Sjálfstæðisflokksins, svo það sé sagt.
Ég tek heils hugar undir það að það er mikilvægt fyrir atvinnulífið og einstaklinga að einfalda regluverkið. En ég hjó líka eftir því að hér var sérstaklega nefnt kennitöluflakk. Það er klassískt dæmi um það hvernig Sjálfstæðisflokknum hefur mistekist og þessari ríkisstjórn að taka á því alvarlega máli. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir misskilur það algjörlega þegar hún tengir það við nýsköpun, hún vill fara varlega í þeim efnum vegna nýsköpunar. Kennitöluflakk, sú meinsemd sem það er í okkar samfélagi og kostar verulegar fjárhæðir, viðgengst í atvinnugreinum þar sem lítið er um nýsköpun. Menn eru í ákveðinni atvinnugrein og þeir standa ekki skil á gjöldum sínum og standa ekki skil við starfsmenn og fara með reksturinn í þrot og stofna nýja kennitölu í sömu atvinnugrein. Það er ekki rétt að tengja þetta við nýsköpun eins og hv. þingmaður gerði áðan.
Ég vil nefna annan málaflokk þar sem Sjálfstæðisflokknum hefur algerlega mistekist að einfalda reglurnar sem eiga að gilda í þeim mikilvæga málaflokki sem hefur verið töluvert í umræðunni í fjölmiðlum undanfarið, en það eru málefni hælisleitenda. Hér hefur komið í ljós að regluverkið er með þeim hætti að það eru svo miklar tafir á umsóknum um alþjóðlega vernd að það kostar ríkissjóð háar fjárhæðir, fyrir utan óhagræðið sem bitnar á þeim sem sækja um alþjóðlega vernd. Hvers vegna getum við ekki farið sömu leið eins og í t.d. Noregi og afgreitt þessar umsóknir á 48 stundum og einfaldað þar með regluverkið? Þetta er klassískt dæmi um mál þar sem Sjálfstæðisflokknum hefur mistekist. Hann hefur haft þennan málaflokk á sinni könnu í áraraðir og á sama tíma vex kostnaðurinn og kerfið verður sífellt flóknara og erfiðara viðureignar, svo það sé sagt.
Ég vildi koma aðeins inn á, herra forseti, mikilvægi þess að löggjafinn og atvinnulífið vinni saman í því að einfalda regluverkið vegna þess að það skiptir verulegu máli. Við sjáum það á mörgum sviðum hvað það veldur miklu óhagræði og kostnaði fyrir almenning þegar regluverkið er flókið og svifaseint. Ég vil t.d. nefna byggingargeirann og byggingarreglugerðir í þeim efnum. Þar er kerfið mjög svifaseint og mörgum gert erfitt um vik varðandi húsbyggingar, t.d. einstaklingum sem ætla að byggja sér hús sjálfir, sumarhús eða þess háttar. Þeir þurfa að fá byggingarstjóra og það eru gerðar sömu kröfur fyrir lítið sumarhús sem einstaklingur ætlar að byggja og fyrir þann sem er að byggja heilt fjölbýlishús, sömu kröfur um byggingarstjóra. Ef viðkomandi hefur t.d. nokkur ár og vill byggja sitt sumarhús í rólegheitum þá þarf hann stanslaust að borga byggingarstjóra tryggingu. Það eru töluverðar upphæðir þegar menn vilja kannski gera þetta á sínum hraða á einhverjum árafjölda og þurfa ávallt að borga þetta gjald. Þetta er eitt af dæmum sem ég tek um mál sem þarf að einfalda.
Ég vil nefna hvað landbúnaðargeirann varðar að þar eru ýmis regluverk sem mætti einfalda og spara þannig kostnað fyrir hið opinbera og bændur. Er eitthvað eðlilegt við það t.d. að þegar taka á út sláturhús sem einstaklingur hefur komið upp á Suðurlandi af miklum dugnaði og elju þurfi að koma dýralæknir frá Akureyri suður til að taka það út? Það felur í sér kostnað fyrir viðkomandi opinbera stofnun, greiðslu ferðakostnaðar, dagpeninga og annað slíkt og síðan þarf sá sem hefur komið þessu sláturhúsi og þessari starfsemi á legg af mikilli eljusemi að greiða þau gjöld. Þetta eru staðreyndir sem ég þekki. Það er víða hægt að taka á svona hlutum sem skipta einstaklinga og fyrirtæki miklu máli.
Ég vil líka koma aðeins inn á það í lokin að í tillögunni er rætt um innleiðingu á evrópskum reglum og regluverki vegna þátttöku Íslands í samstarfinu um Evrópska efnahagssvæðið. Það er bent á í þingsályktunartillögunni, sem er mjög athyglisvert og mjög mikilvægt að hafa í huga, að hagsmunaaðilar á vinnumarkaði hafi á undanförnum árum verið iðnir við að benda á að stjórnvöld innleiði EES-gerðir með meira íþyngjandi hætti fyrir almenning og atvinnulíf í landinu en nauðsynlegt er. Þetta er afar athyglisverður punktur vegna þess að þetta hefur svo sannarlega kostað almenning í landinu miklar fjárhæðir. Ég nefni sérstaklega þegar hér var innleitt regluverk þar sem orkufyrirtækjunum var skipt upp í sölu og dreifingu. Þá giltu sérsamningar við ákveðna landshluta þar sem rafmagn var niðurgreitt til þeirra sem ekki höfðu hitaveitu. Þessi sérsamningar voru allir bannaðir með þessu regluverki Evrópusambandsins. Það var ekki gerð nein tilraun af hálfu íslenskra stjórnvalda til að fá undanþágu fyrir því að fyrirtækjum væri heimilt að niðurgreiða rafmagn til húshitunar með þessum hætti. Þetta hafði í för með sér umtalsverðan kostnað fyrir þá einstaklinga sem þarna áttu í hlut og síðan þurfti ríkissjóður að fara að taka sér niðurgreiðslu sem hefur haft í för með sér umtalsverðan kostnað fyrir ríkissjóð. Þarna hefði hæglega verið hægt að fá undanþágu frá þessum tiltekna þætti í innleiðingu regluverksins en stjórnvöld stóðu ekki vaktina með nægilega öflugum hætti.
Ég vil líka koma aðeins inn á annan þátt sem varðar einföldun regluverks og sem er mjög nauðsynlegt að skoða, en það varðar lögheimilisskráningu. Nú er töluvert um að einstaklingar búi í fullbúnum sumarhúsum sem eru nánast eins og heilsárshús en fá ekki að skrá þau sem sitt lögheimili. Þetta hefur mikið óhagræði í för með sér fyrir viðkomandi einstaklinga, eldra fólk sem fær ekki heimilisuppbót o.s.frv. Það er svo sannarlega þörf á að einfalda þetta og fara vandlega yfir og það er af mörgu að taka, herra forseti. Og á þessum tímum þegar leita þarf allra leiða fyrir ríkissjóð að hagræða og spara í ríkisrekstrinum, þegar halli ríkissjóðs hefur aldrei mælst eins mikill í 100 ár, eins og komið hefur fram, er þetta svo sannarlega nauðsynleg og mikilvæg tillaga. Eins og ég nefndi og tók dæmi um er margvíslegur kostnaður sem hlýst af því að hafa þetta svona flókið eins og raun ber vitni fyrir ríkissjóð og það er eitthvað sem við höfum einfaldlega engan veginn efni á í þessum aðstæðum.
Ég vil minnast á það að lokum að hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði að Miðflokkurinn hefði staðið gegn því að einfalda regluverk um leigubílaakstur og færa það nær því sem er í Evrópu. Það er gildar ástæður fyrir því að við stöndum með leigubifreiðastjórum í þessu máli. Það er einfaldlega vegna þess að við búum við allt aðrar aðstæður en (Forseti hringir.) eru í stórborgum í Evrópu. Hér eru einungis 350.000 manns og ef það á að vega að leigubílstjórum (Forseti hringir.) með þessum hætti er verið að kippa fótunum undan u.þ.b. 600 fjölskyldum sem hafa atvinnu af þessu.
Ég nefni þetta hér í lokin (Forseti hringir.) vegna þess að þetta er mikilvægt mál, herra forseti, og að öðru leyti vona ég að þessi tillaga fái góða umfjöllun og skjóta.
(Forseti (WÞÞ): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða tímamörk.)