151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

almannatryggingar.

25. mál
[12:35]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég spurði suma stjórnarþingmenn í upphafi umræðu um fjárlög hvort það væri ekki réttlætanleg krafa, fyrir þá hópa sem treysta á hið opinbera sér til lífsviðurværis, að þeir fengju sömu hækkanir og ríkisstjórnin hreykir sér af vegna lífskjarasamninga. Ég verð að segja að það var mjög mikið svig í þeim svörum. Það komu engin bein svör við þeirri spurningu, ekkert já og ekkert nei. Er það réttlætanleg krafa að fólk sem treystir á framfærslu frá hinu opinbera, er ekki með verkfallsrétt eða neitt svoleiðis til að berjast fyrir sínum málum, fái alla vega sömu krónutöluhækkun og lægstu laun í lífskjarasamningnum? Mér finnst þetta mjög merkilegt því að þegar lífskjarasamningarnir náðust í gegn var tekinn aukasnúningur þar sem verkalýðsfélögin sögðu að nú yrði að vera kröftug innkoma frá ríkinu. Það fór einhver smáprósess í gang. Ríkisstjórnin kom með einhver atriði sem var búið að sýna löngu áður í fjármálaáætlun o.s.frv. en það var einhvern veginn bara aukahringur sem bætti engu við og stjórnvöld fengu að hrósa sér fyrir aðkomu sína að lífskjarasamningunum. Er það ekki ákveðin hræsni, og ég nota það orð ekki af léttúð, að stjórnvöld skuli einmitt stæra sig af aðkomu sinni að lífskjarasamningunum en beita ekki sömu rökum einmitt gagnvart skjólstæðingum sínum sem eru á lægstu laununum?