almannatryggingar.
Herra forseti. Jú og ég kom aðeins inn á það í upphafi ræðunnar að það væri ótrúlegt að stjórnarliðar skyldu leyfa sér að slá um sig með orðum eins og lífskjarasamningur þegar það er ljóst að hann nær ekki til nema afmarkaðra hópa. Ég geri engar athugasemdir við að launþegahreyfingin eða atvinnurekendur geri það. Þau eru fyrst og fremst að búa til umgjörð um sín mál. Í þeirri ágætu baráttu launþegahreyfingarinnar kom auðvitað skýrt fram að megináherslan þyrfti að vera á hækkun lægstu launa, einfaldlega vegna þess að ekki er hægt að lifa af þeim. Ef ekki er hægt að lifa af lágmarkslaunum liggur í hlutarins eðli að ekki er heldur hægt að gera það þó að þau fáist með öðrum hætti. Það er í raun ekki hægt að orða það öðruvísi en svo, að það sé bara beinlínis mannvonska að dæma lítið barn sem fæðist í heiminn, án þess að eiga nokkurn möguleika á því að ala önn fyrir sér en er samt þátttakandi í samfélaginu og á hlutabréf í auðlindum landsins og sameiginlegum gæðum okkar, til fátæktar næstu 70, 80 til 90 árin. Mér finnst það eiginlega „absúrd“ hugmynd. Við sem höfum há laun og erum með örugga vinnu, næsta árið a.m.k., finnum ekki fyrir efnahagslegum áhrifum þessarar kreppu. Fyrir okkur ganga óþægindin mest út á að þurfa að breyta aðeins lífsstíl okkar en við eigum nógan mat og fáum meira að segja vöru á betri kjörum á hótelum og veitingastöðum ef við erum á ferðalögum. En ýmislegt annað hefur orðið dýrara og t.d. sjálfsagðir hlutir eins og grímur, sem er ekki mikið vandamál fyrir okkur að borga, tíu stykki á fjögurra, fimm daga fresti (Forseti hringir.) er bara stórmál fyrir þennan hóp. (Forseti hringir.) Þannig að jú, þetta er hræsni.