almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög góð tillaga og ég tek hjartanlega undir hvatningu hv. þingmanns til velferðarnefndar um efnislega umræðu um málið og þá sérstaklega varðandi afturvirkniákvæðið í tillögunni. Svo heppilega vill til að þegar ég sá fjárlagafrumvarpið sá ég einhvern veginn þennan augljósa galla, að það vantaði að taka tillit til lífskjarasamninga í hækkun lífeyrisbóta vegna 69. gr. almannatryggingalaga. Ég lagði það fram sem breytingartillögu fyrir fjárlögin í 1. umr. sem gerist ekki oft. En þetta var svo augljós galli. Það er því mjög gott að fá þetta frumvarp þar sem efnislega er tekið á einmitt þessum atriðum á meðan við erum líka að ræða málið í fjárlaganefnd. Ég held að það verði mjög mikið rætt um þetta mál í mörgum nefndum þingsins og sem flestum. Við ættum að tala um það, held ég, í öllum nefndum. Ef eitthvað er er alveg örugglega hægt að finna vinkil á málinu í öllum nefndum þingsins. Þetta er líka umhverfismál. Þetta er líka atvinnumál. Þetta er líka réttindamál. Þetta varðar allt sem við komum að hér áðan. Þannig að því meira, því betra.