almannatryggingar.
Virðulegur forseti. Við fjöllum hér um nauðsynlegt lagafrumvarp til breytinga á lögum um almannatryggingar, hækkun lífeyris. Það er sannast sagna í aðra röndina raunalegt að þurfa að standa hér og tala fyrir frumvarpi af þessu tagi árið 2020. Efnislega fylgdi 1. flm. frumvarpsins, sem flutt er af þingflokki Samfylkingarinnar, því úr hlaði með ágætum og efnislega af nákvæmni. Það er hins vegar fagnaðarefni að vera hluti af stjórnmálaflokki sem beitir sér með þessum hætti. Í sögulegu samhengi er hægt að reiða sig á það að þarna munum við halda áfram að höggva í þar til viðunandi árangur næst. Við þekkjum að það þarf jafnaðarmenn til til að gera umbætur.
Hvert samfélag sem vill kenna sig við menningu, velferð, réttlæti og upplýsingu á ekki að koma svona fram við nokkurn þegna sinna, ekki nokkurn hóp. Um er að ræða samfélagshóp sem hefur rutt brautina, skapað þær forsendur sem við búum við í dag í fjölmenningarlegu samfélagi þar sem gnótt er af flestu. Við búum við tiltölulega hátt menntunarstig og blómlegt atvinnulíf og félagsleg þjónusta er almennt ágæt. Þetta er fólk sem hefur skilað sínu vinnuframlagi. Sennilega flestir við mun harðari kost en við þekkjum sem nú erum á vinnumarkaði eða á vinnufærum aldri, eins og oft er sagt, eða höfum óskerta starfsorku. Hluti af þeim hópi sem við erum að fjalla um, lífeyrisþegar, hefur ekki búið við þau forréttindi að hafa átt óskert vinnuþrek lengst af sínu lífi og því ekki náð að klára viðtekinn starfsaldur. Slys, óhöpp og veikindi hafa hamlað.
Herra forseti. Starfsgeta og vinnufær aldur eru hugtök sem við erum mikið að fjalla um þessi dægrin og þurfum að endurskoða afstöðu okkar til með breytingum í vinnusamsetningu, með breytingu á tækni. Við stöndum líka frammi fyrir nýrri tæknibyltingu sem gerir þessi hugtök kannski úrelt. Það leiðir hugann að annarri þingsályktunartillögu, þingsályktunartillögu sem ég mun leggja fram innan tíðar, um brottfallsregluna um aldurstengd starfslok. En það er allt önnur saga og ekki til umfjöllunar hér. Í þeim tilvikum sem bæði eldra fólk og öryrkjar leitast eftir þátttöku á vinnumarkaði, sem heilbrigði skynsemi segir okkur að sé jákvætt í eðli sínu og hafi ekki nokkurn galla, sé hollt og af hinu góða, refsar löggjöfin þeim grimmilega með þungum skattaálögum sem í mörgum tilvikum toppa alla skattheimtu hjá venjulegu fólki á Íslandi. Lunginn af öllum vinnutekjum fer í skattgreiðslur. Hvaða skilaboð eru það? Vill einhver í þessum sal minna mig á hvaða stjórnmálaflokkur það er hér á hinu háa Alþingi sem berst fyrir lægri sköttum fyrir suma? Hefur sá flokkur beitt sér fyrir því að greiða götu þessa hóps, sýnt skilning á högum þeirra og aðstæðum eða barist sérstaklega fyrir því að gera lífeyrisþegum kleift að búa við sómasamleg kjör, öllum lífeyrisþegum sem stuðning þurfa? Ég hef harla lítið orðið var við það. Skattalækkunarumræðan, skattafyrirgreiðslan, gildir bara fyrir suma. Það er ekki verið að berjast fyrir þá sem hafa það knappast. Þetta gildir fyrir þá sem eiga, en ekki fyrir þá sem þurfa.
Þær aðstæður sem við búum við í dag, þetta misrétti, hljóta að nísta réttlætiskennd hjá hverju og einu okkar. Ég veit ekki hvað veldur því en í gegnum hugann flýgur ýmislegt, hugurinn skoppar víða. Af einhverjum ástæðum kom upp í hugann ljóðhending Steins Steinars úr Passíusálmi nr. 51: Á Valhúsahæðinni er verið að krossfesta mann og fólkið tekur sér far með strætisvagninum til að horfa á hann. Í niðurlagi segir lítil stúlka í áhorfendahópnum: Skyldi manninum ekki leiðast að láta krossfesta sig? Þetta endurspeglar firringu, hvað við erum skilningsvana. Mig langar til að taka svo djúpt í árinni, herra forseti, að segja: Þetta hefur yfirbragð mannfyrirlitningar.
Allt frá árinu 2017 hefur gengið á með samfelldri og stöðugri kjaragliðnun eftirlauna almannatrygginga hjá eldra fólki miðað við almenna launaþróun og þróun lægstu launa á vinnumarkaði. Hún er gríðarleg og þýðir að sú kjarahækkun sem sett var inn með nýjum lögum um almannatryggingar á þeim tíma er löngu fokin út í veður og vind. Öryrkjabandalag Íslands hefur bent á í erindi til þingsins — ég vil kannski ekki orða það þannig, virðulegur forseti, að erindið hafi verið bænaskjal en það er á þeim nótum; við horfum til þessara hópa með þeim hætti að þeir senda bænaskjal til þingsins. Öryrkjabandalagið bendir á að á árinu 2008 hafi leiðir lágmarkslauna og óskerts örorkulífeyris skilið og gliðnunin hafi vaxið stöðugt síðan. Munurinn nemur nú 70.000 kr. Í dag er örorkulífeyrir 70.000 kr. lægri en lágmarkslaun. Og það heldur áfram eins og formaður okkar í Samfylkingunni, hv. þm. Logi Einarsson, kom inn á í ræðu sinni, gliðnunin mun halda áfram ef fjárlagafrumvarpið sem nú liggur fyrir þinginu verður samþykkt. Þar er engar breytingar að sjá eins og sakir standa. Bilið mun breikka og eins og nefnt var mun bilið verða 86.000 kr. á mánuði á næsta ári. Þetta er til mikils vansa, virðulegur forseti.
Við leyfum okkur að koma svona fram við þennan hóp í krafti þess að hann hefur ekki mörg vopn á hendi sem bíta í þessu samhengi. Orðin ein, þótti öflug séu, duga nefnilega ekki í öllu samhengi. Þó að mikið sé talað, mikið rætt og mikið skrifað, og barátta eigi sér stað, þá dugar það skammt. Þetta er ekki sá öflugi þrýstihópur sem margar starfsgreinar sem berjast fyrir bættum kjörum geta, vegna sterkrar stöðu sinnar á vinnumarkaði, myndað. Langflestar starfsgreinar búa við verkfallsrétt og önnur beitt vopn og ná fram bættum kjörum með því, en ekki þessi hópur.
Herra forseti. Er það virkilega svo að í siðmenntuðu samfélagi sé nauðsynlegt að þessi hópur þurfi að standa í vopnaskaki í hvaða mynd sem það svo sem er, standa á torgum, steyta hnefann eða hrópa og krefjast hins sjálfsagða; réttlætis, sanngirni? Við jafnaðarmenn erum að berjast fyrir því að allir lífeyrisþegar í landinu nái framfærsluviðmiðunum. Við erum að tala um að allir geti lifað fyrir ofan fátæktarmörk. Í dag eru þúsundir lífeyrisþega sem ekki gera það og það er hin sorglega staðreynd.
Auðvitað má ekki gleyma því, og ástæðulaust að skauta yfir það, að hluti lífeyrisþega býr við allgóða fjárhagslega umgjörð, hefur áunnið sér lífeyrisréttindi á starfsævinni sem duga ágætlega. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þeim hópi, að mínu áliti. En það eru aðrir hópar, stórir, sem líða skort og neyð. Hagsmuna þeirra eigum við að gæta. Við þurfum að gæta þeirra fyrst og fremst. Við megum ekki bregðast. Við verðum að bregðast við. Við heyrum álengdar hófadyninn, eins og skáldið sagði. Höfum við efni á þessu? Er þetta ekki allt of dýrt? Nei, þetta er spurning um gildismat og siðferði og þetta er spurning um forgangsatriði.
Herra forseti. Að búa við fjárhagslegt öryggi er ekki bara spurning um afkomu. Það er velferðarmál, það er heilbrigðismál. Það er til skammar að þúsundir einstaklinga í samfélaginu geti ekki fyllt í lyfjaboxið sitt hluta mánaðarins, af því að þeir eiga ekki peninga, eiga ekki fyrir hollum og staðgóðum mat sem okkur er öllum nauðsynlegur. Þeir búa ekki við sómasamlegar aðstæður, í góðu húsnæði, sem styrkja þá til sjálfsbjargar en aðstæðurnar gera fremur hitt að veikja heilsuna, brjóta niður stolt og brjóta niður sjálfsmynd.
Er ekki við hæfi, herra forseti, að beita fyrir sig fleygum orðum sem féllu hér á vettvangi þingsins og segja: Nei, svona gerum við ekki? Það er líka rétt að segja: Við skulum sameinast um að gera betur, sameinast um að samþykkja þær lagabreytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu. Við skulum koma þessum hlutum í sómasamlegt horf. Það leggjum við í Samfylkingunni til með þessu frumvarpi og hvetjum til þess að fólk kynni sér jafnframt þær ágætu efnahagslegu tillögur sem liggja fyrir í samantekt okkar, sem er ábyrg leið.