151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

mótun sjálfbærrar iðnaðarstefnu.

44. mál
[14:12]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál, eins og hefur komið fram í umræðu um það. Mig langar að fjalla stuttlega um það í stærra samhengi. Þetta er ekki eins einfalt og halda mætti. Tillagan sjálf er ekki nema um sex línur. En stærra samhengi þessarar tillögu er að þetta er líka menntamál. Það þarf að ná til menntakerfisins til að styðja undir markmið tillögunnar til að hún nái fullum áhrifum. Þetta er líka umhverfismál, að sjálfsögðu, þar sem þetta er sjálfbær iðnaðarstefna. Þetta er síðast en ekki síst mál sem neyðir okkur að horfa til framtíðar, ekki bara að hugsa til fimm ára eins og í fjármálaáætlun heldur lengra. Svona stefna þarf að taka tillit til þeirra tækniframfara sem við getum búist við á næstu fimm, tíu, tuttugu árum.

Eitt af þeim málum sem horfir til framtíðar, sem liggur fyrir þinginu, er mál sem ítrekað hefur verið flutt á undanförnum þingum, um kjötrækt. Þegar sú tækni fer í fjöldaframleiðslu útrýmir hún þörfinni fyrir fjöldaframleiðslu á dýrum. Þegar ég var að móta þessa tillögu hugsaði ég dálítið um hana í tengslum við þróun á sjálfkeyrandi bifreiðum. Þá hugsaði ég sem svo að t.d. sjómennskan væri hættuleg og af hverju væru þá ekki bara sjálfsiglandi bátar sem myndu veiða kvótann eða jafnvel að sendir væru út kafbátar sem myndu grisja fisk eftir stærð o.s.frv. Ég stoppaði þar og hugsaði: Nei, fyrirgefið, af hverju erum við eiginlega að skipta okkur af villtri náttúru þegar við getum einfaldlega búið til kjöt án aðkomu dýra? Þetta er tækniþróun sem útrýmir ekki núverandi landbúnaðarstefnu, alls ekki. Það verður tvímælalaust enn þá þörf og eftirspurn eftir landbúnaðarafurðum eins og þær eru í dag, sérstaklega þeim sem eru náttúruvænar og sjálfbærar eins og eru hér á Íslandi. En það breytir dínamíkinni gríðarlega mikið hvaðan hráefnið kemur, hvort það kemur úr fjöldaframleiðslu á dýrum eða hvort það kemur úr sjálfbærri nýtingu á náttúrunni, alvörunýtingu, og þá frá tækni eins og kjötrækt.

Einnig er fram undan gríðarlega mikil sjálfvirknivæðing í formi róbóta og gervigreindar sem kemur til með að útrýma gríðarlega mörgum störfum. Og þó að það sé satt að það koma alltaf ný störf í staðinn, þá verður líftími þeirra starfa, áður en þau verða sjálf sjálfvirknivædd, sífellt styttri eftir því sem á líður. Nú eru að verða til störf sem taka við störfum sem urðu til fyrir 50 árum síðan. Þau störf duga kannski í 20 ár. Störfin sem taka við, áður en þau verða sjálfvirknivædd, verða kannski til í tíu ár, fimm ár, tvö ár, eitt ár. Fyrr en varir tekur því varla að búa til ný sérstök störf nema þau sem fólk hefur yndi af að sinna sjálft. Það breytir hagkerfinu, forsendum þess og atvinnuþátttöku rosalega mikið.

Síðast en ekki síst eru það breytingar í orkumálum sem eru undirstaða allra hinna breytinganna. Það er ákveðin sjálfbær nýting orku, t.d. með kjarnasamruna eða bara almennri betri nýtingu á grænni orku eins og sólarorku og vindorku o.s.frv., sem verður virkilega nothæf með betri rafhlöðutækni. Þá þurfum við ekki að treysta á stórvirk flutningskerfi raforku frá einhverjum raforkustöðvum eins og virkjunum o.s.frv., heldur verðum með minni og dreifðari framleiðslu á raforku úti um allt land, úti um allan heim. Það á eftir að gjörbylta því hvernig heimurinn starfar. Heimsálfa eins og Afríka t.d., sem hefur ekki verið með mjög stór innviðakerfi til að flytja raforku fram og til baka og út um allt, getur sloppið við þá innviðauppbyggingu og farið beint í dreifðari framleiðslu. Það yrði gríðarleg lyftistöng fyrir allan heiminn sem gerði fólki kleift um allan heim, óháð því hvernig það er statt, að vera t.d. með kjötrækt, að nýta sér sjálfvirknivæðinguna staðbundið, að vera sjálfbær staðbundið. Það er markmiðið með þessu öllu, þrátt fyrir alla alþjóðavæðinguna. Alþjóðavæðing er hluti af stærra sjálfbæru kerfi sem þarf að byrja staðbundið. Við þurfum að byrja staðbundið á sjálfbærni sem við getum síðan yfirfært á alþjóðlega sjálfbærni.

Vandamálið er að við erum dálítið föst í fjötrum hagsmuna þeirra sem eru stöndugir eins og er. Hagsmunaaðilar koma sífellt og segja: Þið þurfið að sinna ferðaþjónustunni, sem er stærst. — Bíddu, ef þið eruð stærst, af hverju þarf þá að sinna ykkur svona vel? Af hverju þarf að hafa sérstakar skattalækkanir? — Við erum í samkeppni við aðra erlendis. — Já, en þið eruð samt stærst hérna á Íslandi. Við þurfum að huga að fjölbreyttari atvinnuvegum á Íslandi til að við séum ekki eins sveiflukennd og við höfum verið á undanförnum áratugum í þessu hvalrekahagkerfi sem höfum búið í. Það kemur síld. Það er frábært, æðislegt. Það verður rosalegur vöxtur en síðan springur það. Bankarnir, frábært, við erum best í bankastarfsemi. Það springur að sjálfsögðu. Raforkuframleiðslan og álið, við erum með endalaust mikið af áli og höfum sveiflast gríðarlega eftir þróun á álverði. Og núna síðast með ferðamönnunum. Það er fyrirsjáanlegt hvernig við Íslendingar störfum. Það kemur hvalreki sem við notum og notum þangað til hann er búinn. Þá springur allt í loft upp, í staðinn fyrir að við hugsum aðeins um sjálfbærnina. Hugsum frekar: Við þurfum kannski ekki tvær milljónir af ferðamönnum á morgun. En þar erum við stödd í dag og þess vegna þarf stefnu um sjálfbæran iðnað, það þarf sjálfbæra iðnaðarstefnu til að við hættum að haga okkur eins og við höfum alltaf gert, þar sem við bíðum eftir næsta hvalreka og horfum ekki til framtíðar.