151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

kosningar til Alþingis.

27. mál
[14:49]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég get tekið undir það. Það sem ég var að reyna að segja í ræðu minni er að við þurfum að færa valdið nær fólkinu. Ég tel að það verði hægt, ekki síst ef landið verður eitt kjördæmi. Í gegnum söguna, þegar reynt hefur verið að jafna vægi atkvæða, hafa pólitísku deilumálin bara verið leyst með því að segja: Fjölgum bara þingmönnum. Það er þægilegast fyrir alla og þá er enginn að taka þennan slag, Mér finnst hins vegar ekki fýsilegt að leggja það til hér af því að ég vil enn þá tala fyrir því að landið verði eitt kjördæmi.

Það skiptir gríðarlega miklu máli, ég er sammála því, varðandi það að sveitarfélögin fái fjárhagsstuðning, að stokka þetta kerfi upp á nýtt. Það þarf að gefa spilin að nýju. Ég tel það tvímælalaust þannig að við eigum að stíga þessi skref.

Af hverju erum við að setja þetta fram núna? Það er af því að ég vil ekki sleppa okkur við að taka þessa prinsippumræðu. Hún skiptir svo miklu máli. Ég vil ekki heldur að fólk hér og flokkar jafnvel komist upp með að segja: Þetta er varnagli, það að hafa þetta misvægi er varnagli fyrir landsbyggðina. Fólk á landsbyggðinni, vinir mínir og fjölskylda að hluta til, mínir tenglar, er ekkert endilega sammála um að það sé besta vörnin heldur miklu frekar að það sé meiri meðvitund innan þingsins, hvaðan sem þingmenn koma, um þær þarfir sem nauðsynlega þarf að sinna á landsbyggðinni. Það er þess vegna sem mér finnst við vera að draga svolítið tennurnar úr þeim krafti sem ellegar gæti verið, ekki síst fyrir landsbyggðina, við að ýta fram verkefnum. Við eigum öll að bera ábyrgð á þessu, ekki bara þingmenn tiltekinna kjördæma.