151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

kosningar til Alþingis.

27. mál
[14:51]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég greini ákveðna jákvæða þróun í áttina að þessu, sem er í formi þess að það eru komnir fleiri flokkar. Hingað til hefur það verið þannig að núverandi kerfi gagnast stærri flokkunum og stærri flokkarnir komast óhjákvæmilega til valda út af því bæði hvernig við teljum atkvæðin, upp á d'Hondt-dreifinguna, og líka af því að atkvæðavægi milli kjördæma er misjafnt. Þegar við erum komin í þá stöðu að flokkar eru fleiri þá skiptir orðið minna máli að viðhalda því kerfi sem kemur stærri flokkunum til valda. Minni flokkarnir eru ekki í þeirri stöðu og eru því líklegri, held ég, til að fara í þessar réttlætisbreytingar. En ég ítreka það að jafnhliða því er rosalega mikilvægt að huga að valdaójafnvæginu á milli nærsamfélagsins og þess sem við gerum á þinginu.