151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

kosningar til Alþingis.

27. mál
[14:56]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni kærlega fyrir þessa beittu en málefnalegu spurningu um leið og ég lýsi yfir ánægju minni með að við höfum oft rætt þetta og höfum í grundvallaratriðum verið sammála um þessa nálgun. Og ég fagna því sérstaklega, römm er sú taug. Svo að ég svari nákvæmlega því sem hv. þingmaður ræddi, annars vegar um nálgunina í 9. gr., sem við förum í, eða 8. gr., hugsuðum við þetta á endanum þannig að við værum að reyna að koma þessu prinsippi í gegn, koma því inn í umræðuna. Síðan er það náttúrlega, eins og er með stjórnarfrumvörp, nefndarinnar að ákveða hvaða leið er best í útfærslunni. Hún hefur frelsi til þess. Ég myndi ekki gera mikinn ágreining um það ef leiðin sem hv. þingmaður bendir á yrði farin. Meginmálið í mínum huga er að málið fái málefnalega afgreiðslu, að það fari í þann farveg sem við í þinginu gerum svo ljómandi vel, þ.e. að bæta og efla og styrkja mál. Ég verð að segja að við töldum leiðina sem við fórum skynsamlega á þessum tímapunkti, að draga þetta fram með þessum hætti. En um leið segi ég að ég skil nálgun hv. þingmanns.