kosningar til Alþingis.
Virðulegi forseti. Já, það er alveg skýrt að framlagning frumvarpsins er einmitt til þess að þingið fái það til málefnalegrar umfjöllunar til að þetta grundvallarmál, þetta prinsippmál, fái málefnalega afgreiðslu þannig að við ýtum því ekki alltaf frá okkur. Svo er þetta aldrei rætt hér nema kannski hugsanlega einu sinni á kjörtímabili. Um leið vil ég ítreka vonbrigði mín með að vinna formanna flokkanna í þá veru einmitt að ná atkvæðavægi jöfnu gengur hægt. Það finnst mér sárt. Mér finnst sárt að upplifa það að samkomulagið, sem við gerðum í upphafi kjörtímabils, er að leiða til þess að stóru grundvallarmálin liggja í raun óbætt hjá garði.