151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

kosningar til Alþingis.

27. mál
[15:06]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Frú forseti. Það er einmitt málið, að nýir flokkar, ólíkir flokkar, ýta við hefðbundinni menningu. Ég held að allt umhverfi hafi gott af því að spyrja sig: Er það sem við höfum byggt upp á umliðnum árum og áratugum, jafnvel öldum, hið eina sanna og rétta fyrirkomulag? Sinnir það þörfum nútímans, hvar sem er á landinu? Þetta er spurning sem við þurfum svo sannarlega að spyrja okkur, ég tek undir það með hv. þingmanni. En fyrst og síðast er þetta mál sem við ræðum prinsippmál. Þetta er grundvallarmál og ég vona heitt og innilega að það fái framgang og málefnalega og góða umfjöllun í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd sem mér skilst að málið fari til. Ég hlakka til að fá tækifæri til að ræða málið hér aftur.