kosningar til Alþingis.
Virðulegi forseti. Kosningarrétturinn er undirstaða lýðræðis. Þessi réttur er heilagur og gegnir því grundvallarhlutverki í gangverki okkar að þjóðin fái að velja sér fulltrúa á þing, velja sér fulltrúa í sveitarstjórn og taki þátt í þjóðaratkvæðagreiðslum. Í þessum rétti felst auðvitað ekki aðeins réttur heldur um leið ákveðin borgaraleg skylda. Við höfum sem þjóð verið stolt af góðri kosningaþátttöku og viljum að hún haldist góð. Ég held að við séum meðvituð um það sem þjóð að kosningarrétturinn hefur djúpa merkingu og gildi, og í aðstæðum eins og þeim sem við stöndum frammi fyrir núna ættum við öll að vera meðvituð um að það er okkar allra að standa vörð um lýðræðið.
Við höfum sem þjóð barist fyrir sjálfstæði. Fullveldið 1918 var kannski stærsta formlega skrefið í átt að sjálfstæði landsins og síðan fylgdum við því eftir 1944 með því að slíta endanlega sambandinu við Danmörku og stofna sjálfstætt lýðveldi. Við þekkjum öll þá sögu, það var gert á Þingvöllum, það var gert á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar, 17. júní. En í langan tíma, í hundruð ára fram að því, bjuggum við við einveldi erlends konungs en nú nutum við sjálfstæðis í eigin þjóðríki. Þetta er merkileg saga en í sjálfstæðu lýðveldi okkar á Íslandi þá eigum við eftir að stíga síðasta skrefið í þessu sambandi, sem er að tryggja jafnt vægi atkvæða, að einn maður eigi eitt atkvæði.
Mér finnst oft gott, þegar maður er að skoða svona mál, að reyna að skoða þau úr annarri átt. Hvað myndum við segja ef hér væri bundið í landslögum að vægi atkvæðis karlmanns væri meira en atkvæði konu? Ég held að þannig ættum við að nálgast þetta mál, kannski að snúa sönnunarbyrðinni við. Þetta er ekki augljós niðurstaða eða algild að svona sé, að einn maður eigi ekki eitt atkvæði. Þá þarf að rýna í rökin og það þarf að rökstyðja það sérstaklega að við ætlum að hafa þennan háttinn á en ekki regluna eins og hún blasir við okkur: Einn maður, eitt atkvæði. Alveg eins og það þykir fráleitt, og ég vona að öllum þætti það fráleitt, að atkvæði karlmanns vægi þyngra en atkvæði konu getur búseta heldur ekki gert það að verkum að atkvæði eins manns vegi þyngra en annars. Hver maður á rétt til eins atkvæðis.
Ekki verður fram hjá því litið að þetta er ekki bara spurning um kosningalöggjöf. Þetta er ekki bara spurning um það hvernig við höfum rammað inn regluverk okkar. Við erum að fást við grundvallarmannréttindi. Nefnd Evrópuráðsins um lýðræði með lögum, Feneyjanefndin svokallaða, hefur gefið út reglur um góða starfshætti í kosningamálum. Þar er talað fyrir því að tryggja eigi sem jafnast vægi atkvæða, að misvægi atkvæða fari almennt ekki yfir 10%, alls ekki yfir 15% nema við mjög sérstakar aðstæður. Vissulega er gert ráð fyrir því að þetta náist kannski ekki í öllum tilvikum og alltaf fram að öllu leyti, en það er hins vegar algerlega skýrt að ríki eigi að leitast við þetta eins og þau framast geta. Á Íslandi er munurinn á atkvæðavægi kjósenda hins vegar yfirleitt rétt undir 100%.
Forseti. Það er ekki ný saga að barist hafi verið fyrir jöfnun atkvæðavægis á Íslandi. Sennilega er sú saga verða 170 ára gömul. Eftir að sjálfstæðisbarátta okkar hófst og heilli öld fyrir stofnun lýðveldisins mælti Brynjólfur Pétursson, Fjölnismaður og lögfræðingur, fyrir slíkum umbótum. Ég vil, með leyfi forseta, líka fá að vitna til orða Hannesar Hafsteins sem varaði við hættum lýðræðishallans. Hann sagði að í því skyni að koma á jafnrétti til áhrifa á löggjöf og landsstjórn væri það augljós mótsögn ef ekki væri jafnframt bætt eitthvað úr því mikla misrétti sem verið hefði í því hvert gildi atkvæði kjósenda hefur verið þannig að kjósendur fái sem jafnastan rétt, einnig í því tilliti. Þessu hefði verið mjög ábótavant. Þetta var árið 1914.
En jafnt atkvæðavægi er ekki eingöngu mikilvægt um það augljósa markmið að styrkja lýðræðið og tryggja jafnan rétt fólks óháð kyni, óháð efnahag og búsetu, því að það er liður í mikilsverðu markmiði þjóðar, að auka samkennd í samfélaginu, og þetta er auðvitað augljóst réttlætismál. En samkennd er kannski gildi sem við höfum haft í hávegum í þeirri baráttu sem þjóðin stendur saman í núna gegn skæðri veiru, heimsfaraldri, sem hefur haft þung áhrif á heilsufar þjóðarinnar, á efnahaginn okkar og hefur í för með sér víðtækar félagslegar afleiðingar aðrar eins og líðan þjóðar.
Frammi fyrir þessu verkefni höfum við staðið saman sem þjóð og forsenda árangursins, vitum við og er stöðugt verið að árétta, er að við stöndum saman sem ein þjóð. Það held ég að eigi að vera forsenda í öllu því samtali sem við munum vonandi eiga um þetta mál, að þegar allt kemur til alls þá erum við einmitt ein þjóð í einu landi. Ég skil þá sem hafa áhyggjur af breytingum að þessu leyti með tilliti til byggðar í landinu. Það er auðvitað mjög mikilvægt að verja byggð í landinu, ekki bara fyrir byggðirnar sjálfar heldur fyrir landið allt og þjóðina alla. Þar sé ég hlutverk okkar þingmanna allra þannig að við séum öll, og eigum öll að vera, þingmenn alls landsins. Það er okkar allra að gæta hagsmuna fólksins alls í landinu, að við séum vakin og sofin yfir almannahagsmunum umfram sérhagsmuni, séum þingmenn þjóðarinnar allrar. Þar skiptir miklu að við sem komum af höfuðborgarsvæðinu séum meðvituð um þetta og gætum að því að við tölum ekki síður máli íbúabyggða landsins en borgarinnar og það á auðvitað við í báðar áttir.
Enda þótt ég hafi mikla samúð með þessum áhyggjum þá held ég að þegar við stöldrum við og skoðum hvaða leið við erum að velja okkur til að verja byggðirnar í landinu, þá sé það ekki hin rétta sem varð fyrir valinu, að það sé ekki rétta leiðin til þess að tryggja hagsmuni landsbyggðarinnar að gera það í gegnum ójafnt atkvæðavægi. Ég á erfitt með að fallast á það og get ekki fallist á það að leiðin til þess að verja byggð í landinu sé í gegnum ójafnrétti, að gefa svo ójafnt þar sem raun ber vitni því að það fer einfaldlega gegn leikreglum lýðræðisins. Leiðin til þess er miklu frekar með þeirri hugmyndafræði, og með þeirri nálgun þingsins alls og þjóðarinnar allrar, að þingmenn séu að gæta hagsmuna þjóðarinnar allrar, að það sé samofið allri okkar hugmyndafræði og pólitík og öll þjóðin eigi þess vegna að geta sameinast um svona réttlætismál. Það hvernig við brúum stundum óþægilega gjá, og að öllu leyti óþarfa gjá, á milli höfuðborgar og landsbyggðar verður ekki leyst með ójöfnu atkvæðavægi. Þar þurfum við einfaldlega að geta talað saman sem ein þjóð í einu landi. Það á í sjálfu sér ekki að vera flókið og er spurning um hugarfar, spurning um nálgun, spurning um pólitík og spurning um nýja leið. Hagsmunir landsbyggðarinnar eru ekki síst fólgnir einmitt í þessu, að mínu mati, að allir þingmenn fari að líta á sig sem fulltrúa þjóðarinnar allrar. Það höfum við í Viðreisn gert.
Forseti. Við hlutum sjálfstæði frá Dönum 1944. Það var merkileg saga og falleg og nú er tímabært að stíga lokaskrefið í sjálfstæðisbaráttu okkar með þessu réttlætismáli, með því að tryggja jafnari rétt og að lokum vonandi jafnan rétt alls almennings í landinu til að velja sér fulltrúa á þingi.