kosningar til Alþingis.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég ætla í ræðu á eftir að fara nánar yfir almenna þætti málsins og sögulega upprifjun og þess háttar, en það sem hv. þm. Guðmundur Andri Thorsson endaði á gefur mér samt tilefni til andsvars. Fyrst vildi ég nefna, því maður er orðinn óþægilega kunnugur mörgum atriðum sem sögu þessa máls varðar, að það sem hv. þingmaður las hér upp var ekki tillaga stjórnlagaráðs eins og hún kom frá stjórnlagaráði heldur tillaga meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar sem lögð var fram í byrjun mars 2013, eftir að hafa farið í töluverða hringi.
Það sem ég vildi spyrja hv. þingmann um var, bara af því að hann opnað á það mál þótt það komi því þingmáli ekkert við sem við erum að ræða í dag, hvort hann telji að þetta ákvæði sem hann vísar til — og það gæti það átt við hvort sem er um 40. gr. í tillögu meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar frá því í mars 2013 eða tillögu stjórnlagaráðs frá sumrinu 2011 — eins og það er fram sett með öllum þeim markmiðum og heimildarákvæðum og möguleikum til og frá, sé nægilega skýrt til að hægt sé að taka það upp sem ákvæði í stjórnarskrá um útfærslu alþingiskosninga.