151. löggjafarþing — 9. fundur,  15. okt. 2020.

kosningar til Alþingis.

27. mál
[15:32]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég taldi mig reyndar hafa tekið það sérstaklega fram að ákvæðið væri eftir að þingið hafði farið höndum um það og farið um þetta orðum. Um það hvort ákvæðið sé nægilega skýrt þá hef ég orðað þetta þannig að ég teldi að þarna væri eitthvað til að vinna með. Ég tel ekki að það megi ekki hrófla við þessu á nokkurn hátt. En ég tel hins vegar að lýðræðið sé síkvikt og mjög mikilvægt að reglurnar séu dálítið sveigjanlegar vegna þess einfaldlega að mannlífið og samfélagið er sveigjanlegt og síkvikt. Lögin þurfa að vera þannig að þau séu til þess fær að lýðræðið hafi sinn gang á sem skilvirkastan og bestan og sanngjarnastan hátt. Þess vegna er ég ekki viss um að það sé endilega markmið í sjálfu sér að lagabókstafurinn sé endilega, eins og hv. þingmaður kýs að nota orðið, skýr. Ég myndi kannski frekar nota orðið niðurnjörvaður og þess eðlis að ekki sé hægt samkvæmt honum að bregðast við nýjum og breyttum aðstæðum í samfélagi sem einkennist af miklum hreyfanleika.