kosningar til Alþingis.
Herra forseti. Allt er það satt og rétt sem hv. þingmaður segir að auðvitað verður sennilega seint fram sett ákvæði í stjórnarskrá um kosningar til Alþingis sem tæmir umræðuna í eitt skipti fyrir öll eða er til þess bært að útkljá málin alveg. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að ef við erum á annað borð að hreyfa við ákvæðum stjórnarskrár um kosningar til Alþingis þá dugi ekki bara, eins og gert var í tillögum stjórnlagaráðs og raunar endurtekið af meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, að varpa inn alls konar hugmyndum og í sumum tilvikum frekar óljósum stefnumiðum án þess að taka afstöðu til þess hvernig ætti að breyta kerfinu. Það er t.d. boðið upp á þann möguleika að hafa bæði landið eitt kjördæmi eða landið í kjördæmum. Það er boðið upp á, miðað við þetta orðalag, mismunandi útfærslur á persónukjöri en ekki svarað hvernig og ýmis markmið önnur sett fram án þess að það sé í raun og veru búið að botna málið.
Ég segi bara fyrir mitt leyti að ég teldi að ef farið væri að breyta stjórnarskrárákvæði um kosningar til Alþingis þá þyrftum við að hafa skýran ramma, ekki bara samansafn af alls konar hugmyndum.