græn utanríkisstefna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans, hún var mikilvæg, nauðsynleg og góð. Sömuleiðis þakka ég hv. þm. Loga Einarssyni, sem talaði hér á undan. Hv. þm. Smári McCarthy kom aðeins inn á það sem mig langaði til að spyrja hann um sem formann þingmannanefndar EFTA, þ.e. varðandi fjórða atriðið í þingsályktunartillögunni, sem er um að stefna um græna fríverslun og alþjóðaviðskipti verði mörkuð og skýrð og ávallt hugsuð og unnin út frá loftslagsmarkmiðunum og alþjóðlegum skuldbindingum í umhverfis- og loftslagsmálum. Eins og hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni hafa þessi mál verið tekin upp á vettvangi þingmannanefndar EFTA og nýr kafli um sjálfbæra þróun er kominn inn.
Mig langar til að heyra frá hv. þingmanni hvort hann telji, sem formaður þingmannanefndar EFTA, að þarna sé enn tækifæri til að gefa í þegar kemur að því að leggja meiri áherslu en nú er á umhverfismálin við gerð fríverslunarsamninga. Við höfum t.d. séð það varðandi fríverslunarsamning Evrópusambandsins við Mercosur-ríkin, sem hefur verið samþykktur en á eftir að skrifa undir — og kannski er það merki um hversu hröð þróunin er og hversu mikil gerjun er í þessum málum, sem betur fer — að komið hafa upp miklar efasemdaraddir í Evrópu, einmitt vegna umhverfissjónarmiða. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmanni finnist raunsætt að við tökum þessi mál betur og skýrar inn í utanríkisviðskipti og alþjóðaviðskipti okkar í fríverslunarsamningunum. Það væri gott að heyra það frá hv. þingmanni.