151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.

[17:19]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Þetta er ástand. Það bitnar illa á gömlu fólki og langveiku og ástvinum þess sem fá ekki að koma og halda í höndina á því til þess að gefa því samband við veruleikann og eigið líf. Það bitnar illa á ungu fólki sem fær ekki þá næringu sem samveran ein getur gefið, hangsið og skoðanaskiptin og straumarnir milli fólks sem stíflast alltaf fyrst á fjarfundunum í tölvunni. Það bitnar á börnunum, á kennurunum, á tómstundafulltrúunum, umönnunarstéttunum, þjónustustéttunum, öllum þeim sem starfa með fólki. Verðmæti eyðileggjast, rekstur fer í þrot, fólk missir sitt. Það bitnar á okkur öllum vegna þess að við erum félagsverur. Við erum háð mannlegu samneyti, að geta setið saman, skipst á sögum og skoðunum, snert, faðmað og orkað hvert á annað á þann hátt sem er ekki hægt í fjarfundarbúnaði. Þetta er ástand sem bitnar á samfélaginu öllu og það er eðlilegt að það komi upp urgur og fólk spyrji: Þarf þetta að vera svona? Eru ekki til aðrar leiðir til að fást við faraldurinn? Það er eðlileg umræða, og raunar forsenda fyrir því að ákvarðanir séu vel ígrundaðar, að tekist sé á um hugmyndir og leiðir.

En við komumst því miður ekki fram hjá því, virðulegi forseti, að veiran er smitandi og hún sést ekki. Það sést ekki hver er smitandi og hver ekki. Og það sem meira er: Fólk smitar mest fyrstu tvo dagana sem það er með veiruna og er um leið einkennalaust. Hér er verið að fást við faraldur og það er ekki hægt að segja til um það fyrir fram hver sleppur með smákvef og hver þarf að berjast fyrir lífi sínu, fara í öndunarvél, jafnvel deyja, og hver þarf að stríða við langvinn eftirköst.

Mönnum verður tíðrætt um frelsið. Þegar það á í hlut koma í ljós ýmsar þverstæður á vettvangi stjórnmálanna. Ég hef veitt því athygli að sumir, sömu menn og berjast gegn rétti fólks til að bera það nafn sem það kýs og velja börnum sínum nafn, berjast fyrir óskoruðum rétti manna til að smita aðra. Um þá baráttu nægir að vitna til Johns Stuarts Mills og grundvallarrits hans um frelsið þar sem er margítrekað að frelsi eins sé bundið við það sem ekki skaðar aðra. Við tölum oft um frelsi til, frelsi til að gera og frelsi til að vera. En það má ekki gleyma því að það er líka um að ræða frelsi undan einhverju, t.d. frelsi undan háska. Við erum hér að fjalla um ráðstafanir sem samfélagið grípur til í því skyni að koma í veg fyrir að sýktur einstaklingur smiti aðra af veiru sem getur dregið til dauða. Þar er líka um að ræða ráðstafanir sem hver og einn ábyrgur einstaklingur grípur til í því skyni að vernda sig og aðra. Þar á ekki að þurfa lagafyrirmæli til.

Virðulegi forseti. Í ítarlegri og vandaðri álitsgerð sinni fer Páll Hreinsson rækilega í gegnum þær valdheimildir sem sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra hafa til ráðstafana sem eiga að sporna við þeim faraldri sem leiðir til dauðsfalla fjölda manns og neyðarástands á spítölum landsins. Af álitsgerðinni má ráða að þessar heimildir séu fyrir hendi og þær séu ótvíræðar. Af henni má líka ráða að meðalhófsreglu hafi verið beitt, að valin hafi verið úrræði sem virka, eru eins væg og hugsast má og þeim verið beitt á eins vægan hátt og mögulegt er.

Páll endar álitsgerð sína á að koma með nokkrar ábendingar um það hvernig styrkja megi lagagrundvöllinn í þessum málum. Þess hlýtur að mega vænta að stjórnvöld bregðist við þeim ábendingum hratt og vel. Þar má nefna sérstaklega að látið hefur verið undir höfuð leggjast að birta í Stjórnartíðindum þá alþjóðaheilbrigðisreglugerð sem er vísað til í lögskýringargögnum við sóttvarnalög, sem er neyðarleg handvömm. Hitt, hvort skuli tala um sóttkví, afkví eða kví kví, er ekki frágangssök. Æskilegt væri þó að orðið sem notað er væri alls staðar hið sama.

Ég tel að stjórnvöld hafi gert rétt í því að fara ævinlega að ráðum sóttvarnalæknis. Og ég hvet þau til að gera það áfram þó að ég og flokkssystkini mín séum vissulega ósátt við ýmislegt í því hvernig stjórnvöld hafa síðan haldið á málum þegar kemur að atvinnumálum og efnahagslífi. Ég tel að ef til enn vægari aðgerða hefði verið gripið, eins og sumir telja æskilegt, hefðu ekki bara fleiri sýkst og veikst og jafnvel dáið heldur hefðu ráðamenn brugðist skyldu sinni og væru jafnvel skaðabótaskyldir. Ég tel það ekki hlutverk Alþingis að hlutast til um ákvarðanir um það hvort megi fara í sund eða golf en að til kasta Alþingis hljóti að koma þar sem þarf að bæta úr þeim ágöllum sem Páll Hreinsson hefur bent á. Og því fyrr, því betra. Ég hef borið og ber áfram traust til þeirra þriggja sem hafa staðið í eldlínunni í faraldrinum og standa enn.