valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég hef þá trú núna í þeirri stöðu sem við erum, og kannski líka almennt séð, að framfarir í okkar annars góða samfélagi, og sérstaklega hvernig við komum okkur út úr þessum veirutíma, séu í beinu samhengi við það hvernig við náum að viðhalda samstöðu þjóðarinnar. Við verðum að gera allt til að koma í veg fyrir að það skapist tortryggni. Það þýðir að við þurfum gagnsæi, við þurfum samtal, við þurfum skýrt upplýsingaflæði af hálfu stjórnvalda og ekki síst af hálfu ríkisstjórnarinnar sem ber hina lýðræðislegu ábyrgð. Það að ríkisstjórnin komi hingað inn í þingsal núna — það er engu að síður fagnaðarefni að við höfum þetta tækifæri í dag til að ræða einmitt þennan vinkil sem er svo mikilvægur í þessu öllu saman. Ég er sannfærð um að samtalið hér inni en líka samtal okkar, samtal ríkisstjórnar, samtal þings, við þjóðina skipti máli til þess að reyna að útskýra hvaða leiðir á að fara og er verið að fara.
Í byrjun gekk vel og það skiptir gríðarlega miklu máli. Stjórnvöldum hefur verið hrósað en ég ætla líka að leyfa mér svolítinn sjálfbirgingshátt og segja að þvert yfir hefur stjórnarandstaðan líka staðið sig því að hún áttaði sig á því að þá, í febrúar, mars, var ekki tíminn til að dvelja við hlutina. Ég tek þó undir orð m.a. Bjarna Más Magnússonar, prófessors í lögum við Háskólann í Reykjavík, að það er alltaf tími til að ræða prinsippmálin. En við töldum engu að síður mikilvægt að undirstrika traust okkar til sóttvarnayfirvalda og þeirra yfirlýsinga sem þau gáfu strax í byrjun. Er ég með því að segja að ég sé sammála öllu? Nei, ekkert endilega, en það skiptir máli að þau viti að þau hafi stuðning.
Við skulum hafa það hugfast að í upphafi voru það ekki hinir frelsiselskandi þingmenn, sem maður ber mikla virðingu fyrir, sem höfðu hér hátt, við heyrðum miklu frekar raddir um að ganga ætti enn lengra í því að vera með drastískar aðgerðir vegna veirunnar. Það voru m.a. fyrrverandi þingmenn sem sögðu að það ætti að ganga miklu lengra. Í heildina séð í byrjun tel ég að stjórnvöld og ríkisstjórnin hafi stigið varfærin, skynsamleg skref. En ríkisstjórnin tók líka þá pólitísku ákvörðun að vera ekki í neinu samtali hér inni eða samvinnu. Við virtum það, töldum að það væri einfaldlega það mikið að gera að þau vildu ekki virkja þetta samtal þó að það væri miður. Við sjáum svolítið angann af því í dag þegar við upplifum að einhverju leyti ákveðna örvinglun innan ákveðinna stjórnarflokka eins og Sjálfstæðisflokksins varðandi þá þróun sem nú er. Það má að mörgu leyti taka undir ákveðnar áhyggjur. En ég vil vara við þeirri pólaríseringu sem er svolítið núna í samfélaginu. Ef maður er ekki sammála öllu því sem sóttvarnayfirvöld segja, er maður þá með því að allt verði galopið? Nei, alls ekki.
Ég vil vekja athygli á því að sóttvarnayfirlæknir sjálfur, Þórólfur Guðnason, sem hefur að mínu mati staðið sig frábærlega eins og hin í þríeykinu, hefur hvatt til þess að það verði virk umræða um aðgerðirnar, að tilmæli þeirra verði líka sett í samhengi við aðrar ákvarðanir sem þarf að taka á þessum tímum. Ég held einmitt að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að vera ekki með meira samtal og vera ekki með meira upplýsingaflæði í þinginu hafi m.a. leitt til þess að síðar, þegar ákveðið var að fara í aðrar og viðameiri sóttvarnaaðgerðir, hafi fólk ekki alveg skilið nákvæmlega hvaða leiðir væri verið að fara og ekki síst þegar efnahagsaðgerðirnar voru með engu móti í samræmi við ákvarðanir sóttvarnayfirvalda og ríkisstjórnar. Það voru ekki tekin þessi stóru skref strax eins og við í Viðreisn bentum ítrekað á að þyrfti að gera.
Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin hefur víðtækar heimildir og hún ber líka mikla ábyrgð. Hún hefur ekki bara rétt til að hafa þessar heimildir, hún ber líka víðtæka og mikla ábyrgð á að bregðast við. Ég held að hún hafi reynt að gera það eftir bestu getu. Auðvitað verða mistök og sagan mun sýna að það voru gerð mistök. En það er betra að taka ákvarðanir þó að þær hafi í för með sér einhver mistök heldur en ekki. Þegar við erum í þessari þriðju bylgju faraldursins, sem er erfið, bindur maður vonir við að aðgerðirnar núna skili okkur heilum og höldnum í hús. En það þýðir ekki að við getum ekki gagnrýnt.
Mér fannst miður að eftir sumarið, eftir sex mánuði frá því að veiran kom upp, þegar ég og fleiri í stjórnarandstöðunni bentum vinsamlega á að ríkisstjórnin hefði mátt nýta tímann í sumar aðeins betur til upplýsinga og til að skýra út af hverju efnahagsaðgerðir voru ekki í samræmi við sóttvarnaaðgerðir, var því tekið frekar illa. Sumir segja að svartstakkar stjórnarflokkanna hafi verið sendir á svæðið. Mér fannst það ekki til vitnis um að markvisst væri verið að virkja lýðræðislega umræðu. Það er það sem ég vil hvetja hæstv. forsætisráðherra til, það er að virkja umræðuna hér. Því viti menn, við erum hér frekar til stuðnings en að grafa undan því sem þó er verið að gera, hvort sem er gagnvart heimilum eða fyrirtækjum.
En ég ætlast líka til þess að ríkisstjórnin sjálf hafi á sínum tíma metið það — ekki bara komið með sviðsmyndir, sem mér finnst reyndar skorta verulega á — hvenær sóttvarnaaðgerðir væru í jafnvægi og samræmi við efnahagsaðgerðir, félagsleg áhrif og líka þau áhrif sem þær hefðu á persónufrelsi og persónuvernd fólks. Á einhverju stigi hlýtur ríkisstjórnin að hafa átt einhverja ríkisstjórnarfundi þar sem þau hafa vegið þetta og metið. Mér þætti gott ef hæstv. forsætisráðherra gæti einmitt upplýst okkur um að ríkisstjórnin hafi meðvitað reynt að vega og meta allar þessar aðgerðir. Ég geri mér grein fyrir því að það er auðvitað allt saman háð ákveðinni óvissu. En það hlýtur að vera þannig að þegar líður á veiruna og það líður á þennan tíma og upplýsingarnar verða meiri þá séu gerðar ríkari kröfur til ríkisstjórnarinnar um að hún gæti að persónufrelsi, mannréttindum samkvæmt stjórnarskrá, að meðalhófi og að lögmætisreglan sé viðhöfð.
Ég verð að einu leyti í viðbót að gagnrýna ríkisstjórnina þótt ég segi líka að margt er mjög vel gert, ekki síst hvernig ákveðin úrræði hafa verið sett fram af hálfu sóttvarnayfirvalda þó að taka megi undir að það þurfi að skerpa á línum í tilmælum og reglugerðum og skilaboðin þurfi að vera miklu skýrari. Mig undrar það sérstaklega að flokkar eins og Sjálfstæðisflokkurinn skuli ekki hafa þrýst á það að annað mál á dagskrá þessa þings á eftir fjárlagafrumvarpi væri einmitt valdheimildir sem væru nýjar í sóttvarnalögum sem byggja undir þær ákvarðanir sem sóttvarnayfirvöld og heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnin taka hverju sinni. Þetta vissi fólk strax í sumar. Þingmenn skrifuðu um það fyrir mörgum vikum að byggja þyrfti betur undir valdheimildir í sóttvarnalögum. Og það undrar mig sérstaklega, virðulegur forseti, að við séum ekki þegar byrjuð að ræða þær breytingar, þær mikilvægu breytingar, sem byggja einmitt undir heimildir ráðherra til að stíga drastískt inn í líf og störf fólks alla jafnan.