151. löggjafarþing — 10. fundur,  19. okt. 2020.

valdheimildir sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra til opinberra sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla forsætisráðherra. - Ein umræða.

[18:35]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þessa ágætu umræðu sem hér hefur verið og segja það líka að í gegnum þennan faraldur allan frá því í mars finnst mér Alþingi hafa staðið mjög vel undir hlutverki sínu og ábyrgð, þ.e. að ræða einmitt þau mál sem hér hafa verið til umræðu en líka aðrar afleiðingar faraldursins, samfélagslegar og efnahagslegar. Sömuleiðis finnst mér þingmenn hafa nálgast þetta mál þvert á flokka af mikilli ábyrgð.

Ég hlýt að gera athugasemd við þá hv. þingmenn sem hér tala um að ríkisstjórnin hafi ekki haft frumkvæði að umræðu. Það er heldur betur ekki svo. Ég hef gefið þinginu einar þrjár skýrslur um faraldurinn og sú síðasta var 27. ágúst þar sem ég ræddi sérstaklega um borgaraleg réttindi þó að hv. þingmenn ræddu þau alls ekki mikið á þeim tíma en hefðu meiri áhuga á að ræða efnahagslegar aðgerðir. Það var kannski orðin ákveðin uppsöfnuð þörf fyrir þessa umræðu sem er bara vel. Greinargerð Páls Hreinssonar, sem hér er undirstaðan, er sömuleiðis unnin að frumkvæði ríkisstjórnar, forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra, enda mjög mikilvægt að taka þá umræðu.

Nokkrir hv. þingmenn hafa sömuleiðis rætt um mikilvægi þess að við metum önnur áhrif þegar við setjum á sóttvarnaráðstafanir. Það er alveg rétt, sem hér hefur komið fram hjá mörgum hv. þingmönnum, að frummarkmið og frumskylda stjórnvalda frá upphafi hefur verið að verja líf og heilsu. En við höfum líka alltaf sagt með skýrum hætti að við þurfum að lágmarka samfélagsleg og efnahagsleg áhrif. Einmitt þess vegna höfum við lagt áherslu á skólahald. Það er til að mynda til að draga úr áhrifum á börn en tryggja líka að fólk geti áfram stundað sína vinnu. Sömuleiðis höfum við verið að skoða og vinna greiningar á efnahagslegum áhrifum af sóttvarnaráðstöfunum. Þær eru ekki það eina sem hefur áhrif því að ótti fólks við veiruna hefur auðvitað áhrif á stöðu efnahagsmála. Hann breytir hegðun okkar. Það er kannski stærsti einstaki þátturinn í áhrifunum á efnahagskerfið. En við sjáum, til að mynda í nýrri greiningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að harðari aðgerðir geta jafnvel stuðlað að hraðari efnahagsbata. Þannig að þegar við ræðum hér um mikilvægi þess að gæta meðalhófs í aðgerðum okkar þá þurfum við líka að hafa það í huga að með því getum við jafnvel verið að stuðla að lengra tímabili þar sem við (Forseti hringir.) þurfum að beita ráðstöfunum.

Ég bið hv. þingmenn að velta þessu fyrir sér. Í þessu er ekki einfalt mál að draga eingöngu fram réttindahliðina. Við þurfum alltaf að hafa hinar samfélagslegu og efnahagslegu afleiðingar undir (Forseti hringir.) sem og að sjálfsögðu heilbrigðisafleiðingarnar sem verður stóra viðfangsefnið okkar og frumskylda, ekki bara ríkisstjórnarinnar heldur ætti það að vera frumskylda (Forseti hringir.) hvers einasta þingmanns sem tjáir sig um þessi mál. Til þess erum við kjörin hingað.