loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Ég kem hér fyrst og fremst til að lýsa yfir stuðningi við þetta mál og þakka hv. þingmanni fyrir að leggja það fram. Mig langar aðeins að ræða það sem hv. þingmaður nefndi varðandi markmið og að setja sér markmið sem hæfa tilefninu. Það er nefnilega þannig með þennan málaflokk eins og svo marga aðra, að það eru allir einhvern veginn til í að gera eitthvað, en svo renna á fólk tvær grímur þegar það þarf að fórna einhverju til þess. Í því sambandi er það áhugavert sem hv. þm. Guðmundur Andri Thorsson fór hér yfir áðan; að jafnvel í krísum eins og þessari, þar sem bregðast þarf við af miklu afli með því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, leynast tækifæri, efnahagsleg tækifæri.
Við gerum svolítið oft ráð fyrir því að eina leiðin til að takast á við þetta sé að rústa hagkerfinu. Það er ekki alveg rétt. Það er mikilvægt að hafa í huga að það hvernig við byggjum upp hagkerfið okkar almennt og köllum efnahagslegan ávinning og köllum vöxt, er í raun og veru það þegar manneskjur vilja eitthvað sem hægt er að fá og borga fyrir það peninga. Annars hygg ég að tónlist og fótbolti og annað eins væri kallað eintóm sóun og væri ekki talið til vaxtar þegar það er aukning á öðru hvoru eða aukning á aðsókn í annaðhvort. Meiri peningar í spilinu, meiri fjárfesting, fleira fólk að kaupa miða, fleira fólk að spila fótbolta eða tónlist. Ef mannkyn allt, eða jafnvel bara nógu stór hluti þess, myndi setja sér það markmið í grunninn að ráða bug á loftslagsvandanum þá yrði það verðmætt að ráða bug á honum. Það er í raun og veru það sem við köllum verðmæti, það er eitthvað sem fólk vill. Vandinn er oft að fólk vill ekki nógu heitt laga þennan vanda, ýmist vegna þess að það trúir ekki að vandinn sé jafn raunverulegur og hann er, eða vegna þess að það er ekki til í að fórna því sem við höfum notað upp á síðkastið til þess að nýta orku á einhvern hátt.
Því að þegar allt kemur til alls snýst þetta um orku. Það snýst um hvernig við náum í orku, hvernig við nýtum orku. Eðlisfræðilögmálin eru stundum hörð við okkur þar, en stundum eru þau mjög gjöful. Við erum svo heppin að við búum við stærstu, mikilvægustu og mestu tækniframfarir í sögu mannkyns og ekkert bendir til þess að það sé að hægja á þeim. Þvert á móti eru þær svo hraðar að við sjáum ekki fyrir endann á þeim út þennan áratug, hvað þá lengur. Við eigum að hafa í huga tímabil sem við minnumst gjarnan fyrir aðrar sakir, þ.e. 2007–2009. Um það leyti eða rétt áður voru að verða háværari raddir um það sem á ensku er kallað „peak oil“ — ég veit hreinlega ekki hvernig það er þýtt á íslensku, en það má kannski lauslega þýða sem hámark olíuframleiðslunnar. Þá sýndu spálíkön, sem höfðu reyndar staðist fram að því, að við myndum ekki sem mannkyn finna nógu mikið af nýjum olíuauðlindum til að koma til móts við ríkari orkuþörf. Þetta leiddi m.a. af sér gríðarlega hátt olíuverð, það var að verða ofboðslega hátt og var mótmælt hér hástöfum og víðar af þeim ástæðum. Fólk gleymir því stundum vegna þess að það fellur í skuggann af efnahagshruninu 2008.
Síðan gerðist það því miður að fundið var upp það sem kallað er „fracking“. Við það leystist úr læðingi flóð nýrra olíulinda, eða að hægt varð að nýta olíulindir miklu meira og var í raun bylting í olíuframleiðslu. Ég segi því miður, vegna þess að fyrir þessar sakir var olíuverð ekki lengur svo hátt vegna þess að ein af hliðarverkunum af þessu háa olíuverði — sem eru áhrif sem ég vil fá til baka, virðulegi forseti, eins óþægilegar og þær eru fyrir ýmsa aðila í samfélaginu — voru þær að gríðarleg fjárfesting átti sér stað í grænum lausnum. Á þessu tímabili var virkilega hægt að vona að við gætum séð fram á mjög raunverulegar lausnir á vandanum, vegna þess að vandinn var algjörlega yfirþyrmandi, ekki bara í skilningi loftslagsbreytinga, fyrir fólk sem er að velta því fyrir sér, heldur hreinlega af því að olían var svo dýr. Með öðrum orðum, það varð svo gróðavænlegt fyrir mannkynið að ráða bug á vandanum. Og vandinn var hver? Við höfðum ekki næga olíu. Það er í grunninn það sama og að segja að olían sé svo dýr.
Ef mannkynið gæti sleppt því að vinna frá 9 til 5 og sjá um börnin sín og vini sína og fjölskyldu þá gætum við sjálfsagt öll einbeitt okkur að því að ráða bug á loftslagsvandanum og rifist þar til við erum öll sammála um vísindalegu staðreyndirnar á bak við það sem við þurfum að gera. Það er ekki tilfellið. Fólk þarf að sinna sínu daglega lífi í hinu daglega amstri og það er ekki hægt að ætlast til þess að markaðurinn muni vilja ráða bug á þessum vanda. Manneskjur almennt eru bara of mikið afsprengi þróunarkenningarinnar til að hugsa svo langt fram í tímann ef það finnur ekki áhrifin af gjörðum sínum á eigin skinni í tæka tíð til að bregðast við. Það er eðli þessa vanda að það tekur tíma þar til mistök okkar bitna á okkur sjálfum. Þaðan kemur vantrúin á vandann. Við getum spilað golf á tunglinu en við erum samt ekki alveg nógu fær í því að hugsa lengra fram í tímann, enda krísuástand sem gerir okkur það kleift efnahagslega séð, ef út í það er farið.
Í ljósi alls þessa er mikilvægt að við áttum okkur á því að til þess að ráða bug á þessum vanda þurfum við fjölbreyttari lausnir en þá að ætla hinum almenna borgara að leysa vandann, ýmist með því að halda að sér í neyslu eða eitthvað því um líkt, eða að ætla fyrirtækjum að hafa þvílíka góðmennsku að leiðarljósi og orðstír sinn í þeim efnum svo dýrmætan að fólk láti af þeirri hegðun sem óhjákvæmilega eykur neyslu og þar af leiðandi losun. Við verðum að hafa það dýrt að losa gróðurhúsalofttegundir. Það er ekki þægilegt ferli, samanber mótmælin sem urðu þegar olíuverðið var í hæstu hæðum á sínum tíma. Það er ekki þægilegt, það er ekkert gaman. Enginn ætti að hlæja og hía yfir því. En við verðum að gera þetta. Og stundum þegar ógnin er nógu skýr þá er samtakamátturinn mikill, samanber kórónuveiruna, þar sem samtakamátturinn hefur verið ótrúlega mikill. Réttilega er spurt: Hvað ef við tækjumst á við loftslagsvandann eins og við tökumst á við kórónuveiruvandann? Hvað þá? Myndum við hægja á gjörvöllu hagkerfi heimsins? Myndum við fara í yfir 200 milljarða halla á ríkissjóði? Ég er ekki viss um að við þurfum að gera það, en ef við þyrftum að gera það, ef það væri algerlega skýrt að við þyrftum að gera það, myndum við ekki gera það? Auðvitað myndum við gera það. Við erum að gera það vegna kórónuveirunnar. Hvers vegna myndum við ekki gera það vegna loftslagsbreytinga sem geta, ef mjög illa fer, tortímt umhverfinu? Það eru engar ýkjur, það er bara skiljanlega ekki í tísku að vera með svartsýnustu spárnar. Þær eru ansi slæmar.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég ætlaði upprunalega að halda stutta ræðu, en eins og kemur fyrir í þessari góðu pontu þá sleppir maður sér stundum þegar vaðið er af stað. En ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir málið og vona innilega að á næsta kjörtímabili hafi ríkisstjórn og meiri hluti þings kjark til að gera þetta.