störf þingsins.
Herra forseti. Í upphafi þessa þings flytjum við ásamt öðrum þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frumvarp um breytingu á barnalögum, þ.e. réttinn til umönnunar barna. Frumvarpið lætur kannski ekki mikið yfir sér. Menn líta kannski svo á að þetta sé eitthvað sem við tökum sem gefinn rétt í íslensku samfélagi. Langflestir kjarasamningar innihalda einhvers konar ákvæði um það að fólk geti sinnt börnum sínum þegar þau eru veik þótt það sé svolítið mismunandi eftir kjarasamningum. Þetta hefur hins vegar ekki verið innleitt í íslenska löggjöf og kannski orðið löngu tímabært. En á bak við þá hugsun sem þarna er er annað mál sem er jafn stórt eða jafnvel stærra og það er að með þessari breytingu er verið að skilgreina þennan rétt sem rétt barnsins. Það er verið að tryggja það að hvert barn eigi þennan rétt í íslensku samfélagi.
Samhliða þessu frumvarpi er síðan lögð fram þingsályktunartillaga sem fjallar um það hvort og hvernig við getum skilgreint að hvert barn hafi jafn mikinn rétt, þ.e. að rétturinn sé ekki bundinn við foreldrið eingöngu því að þá getum við t.d. lent í þeirri stöðu að börn sem eru í stórum barnahópi eiga í raun miklu minni rétt heldur en þau börn sem eru til að mynda einbirni tveggja foreldra.
Málið er flutt í samræmi við skuldbindingar okkar í sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, þ.e. að skilgreina með sem ítarlegustum og skýrustum hætti þau réttindi sem börn eiga. Það er líka verið að reyna að tryggja þarna að öll börn í íslensku samfélagi eigi sama rétt. Ég hlakka til að eiga umræður við þingmenn um þetta mál þegar það verður flutt hér á morgun, að ég held, og fagna því ef hv. þingmenn taka þátt í slíkri umræðu með mér.