151. löggjafarþing — 11. fundur, 20. okt. 2020.
störf þingsins.
Þannig háttaði til í dagskránni að hv. 3. þm. Reykv. n. Helgi Hrafn Gunnarsson, hafði ekki lokið ræðu sinni þegar nokkur óvænt truflun varð á fundinum, ekki af mannavöldum að þessu sinni heldur gekk hér yfir húsið snarpur jarðskjálfti upp á 5,7 samkvæmt bráðabirgðamati, og hér ekki svo langt undan.
Verður nú fundi fram haldið og fær aftur orðið hv. 3. þm. Reykv. n. og lýkur ræðu sinni.