151. löggjafarþing — 11. fundur,  20. okt. 2020.

loftslagsmál.

[14:24]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Við þurfum að ræða aðeins um trúverðugleika Íslands í loftslagsmálum, um það hvort mannkynið í heild geti bjargað sér undan sjálfskaparvíti og um það hvernig Ísland getur hjálpað til meira en það gerir nú þegar. Í þessari umræðu eigum við sem þing ekki að þurfa að takast á um pólitísk grundvallaratriði. Ég lít svo á að við séum öll bandamenn í því að viðhalda lífvænleika jarðar. Þessi umræða er því frekar nokkurs konar stöðutékk. Hvernig gengur okkur? Hvar getum við staðið okkur betur? Erum við að missa af einhverjum tækifærum? Erum við að klúðra stórkostlega eða jafnvel að missa sjónar á vandamálinu, t.d. vegna þess að við stöndum frammi fyrir stórum málum eins og heimsfaraldri Covid-19?

Við áttum samtal á Alþingi um loftslagsmál 25. október 2018, fyrir 726 dögum síðan, og svo aftur 21. mars 2019. Síðan fyrri umræðan var haldin hafa liðið 17,7% alls þess tíma sem við höfum fram að skuldadögum gagnvart Kyoto-bókuninni og Parísarsáttmálanum árið 2030. Þegar Parísarsáttmálinn tók gildi 4. nóvember 2016 voru 14 ár til stefnu, en 29% þess tíma sem við höfðum til stefnu er liðinn.

Einfaldasta spurningin er því þessi: Lítur hæstv. ráðherra svo á að Íslendingar hafi náð nægilega miklum árangri í að standa við skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsáttmálanum miðað við að 29% tímans sem við höfðum er liðinn? Hefur Ísland náð 29% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda á tímabilinu? Ef svo er ekki þá erum við búin að gera verkefni framtíðar erfiðara með of litlum og vanmáttugum aðgerðum fram að þessu. Það tekur auðvitað langan tíma að snúa við flóknu ferli en á meðan fara líkurnar á því að það takist minnkandi, með hverju augnablikinu sem líður. Eru einhver ummerki um að þetta muni nást? Búið er að leggja fram nokkrar tillögur um að reyna að hraða ferlinu, til að mynda með grænum sáttmála sem Píratar og Samfylkingin hafa lagt fram nokkrum sinnum, en þær hafa ekki hlotið brautargengi.

Svo hefur framtíðarnefnd unnið vinnu við að greina stöðu Íslands með hliðsjón af því hvað gerist ef við náum Parísarmarkmiðunum. Von mín er að við náum að klára þá vinnu í haust og birta niðurstöður. En eftir því sem á líður bendir sífellt fleira til þess að við þurfum að gera grundvallarbreytingar á hagkerfi Íslands og heimsins alls ef markmiðin eiga að nást. Það er hverjum ljóst sem lætur sig loftslagsmál varða að það er engin leið að skapa sjálfbært samfélag án þess að breyta því hvernig gangverk efnahagsmála virkar á heimsvísu. Á meðan efnahagsmálin undanskilja ágang á náttúruauðlindir frá hagnaðartölum og á meðan krafan um hinn endalausa hagvöxt er ekki kveðin niður er engin leið að áætla að árangur náist í loftslagsmálum. Það verður að gera nákvæmlega sömu kröfur til loftslagsbókhalds og gerðar eru til ríkisfjármála. Reyndar er neyðin til að samtvinna aðgerðir í efnahagslífinu við loftslagsmál orðin svo brýn að maður veltir því fyrir sér hvort umhverfismál og efnahagsmál eigi ekki að heyra undir sama ráðherra.

Forseti. Nú þegar heimsfaraldur Covid-19 hefur valdið gífurlegu atvinnuleysi um allt land er spurning hvort ekki sé tilvalið að fjármagna græn atvinnuskapandi verkefni í meira mæli en nú er, til að mynda með meiri og beinum stuðningi við endurheimt votlendis og skógrækt. Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna hefur lýst komandi áratug sem áratug í þágu vistkerfabjörgunar. Mér finnst þetta frábært verkefni hjá þeim. Meðal stórtækra aðgerða sem undir þetta heyra þá stendur til að reisa vegg, ekki gráan vegg til að aðskilja þjóðir heldur grænan vegg til að sameina löndin sunnan Sahara gegn eyðimerkurmyndun með umtalsverðri skógrækt, nýjum skógi þvert yfir Afríku. Reynsla Íslendinga af landgræðslu gæti hjálpað í því verkefni ef við myndum sýna umheiminum nógu mikinn áhuga. En ljóst er að mörg lönd, m.a. sum stærstu lönd heims, munu að óbreyttu ekki ná að draga úr losun sinni svo nokkru nemi. Jafnvel þar sem pólitískur vilji er til staðar að nafninu til virðast önnur efnahagsleg og samfélagsleg markmið ráða för. Verstu skógareldar sögunnar hafa geisað ár eftir ár, fellibyljum fer fjölgandi á hverju ári, metþurrkar eru o.fl. Við þurfum að forgangsraða stórtækum aðgerðum fram yfir smærri puntverkefni sem láta stjórnmálin líti vel út en að hafa litla þýðingu í reynd.

Ég spyr því ráðherra að lokum: Hvað gæti Ísland gert til að auka þrýsting á þau lönd sem þurfa á stuðningi að halda, styðja við aðgerðir til samdráttar á losun og almennt stuðla að því að árangur náist?