loftslagsmál.
Herra forseti. Við ræðum loftslagsmál. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda, hv. þm. Smára McCarthy, fyrir að vekja máls á þeim vanda sem loftslagsváin er, því að ég tel vissulega rétt að aukin losun gróðurhúsalofttegunda, koltvísýrings og annarra slíkra lofttegunda hafi áhrif á loftslagið og ýti undir hlýnun. Miðflokkurinn hefur ítrekað bent á að fara þurfi í raunverulegar aðgerðir sem skipta máli en ekki bara einhverjar sýndaraðgerðir. Þetta höfum við ekki bara rætt, heldur ítrekað lagt fram þingmál í þá veru, t.d. tillögu um byggingu hátæknisorpbrennslustöðvar og tillögu um aukna skógrækt til kolefnisbindingar.
Ríkisstjórnin virðist fremur vilja fara í sýndaraðgerðir sem einkennast helst af aukinni kerfisvæðingu loftslagsmála og kerfið í kringum þessi mál þenst út sem aldrei fyrr. Sérfræðingakerfið og skrifstofubáknið utan um málaflokkinn stækkar með hverjum degi sem þessi ríkisstjórn er við völd, en það leysir að vísu úr atvinnuvanda sérfræðinganna. Hins vegar sér ríkisstjórnin tækifæri í loftslagsvandanum til aukinnar skattlagningar og ekki skortir hugmyndir um alls kyns nýja skatta sem leysa eiga vandann en eru í raun aðeins enn einn nýr skatturinn. Þessir skattar birtast oft í formi nefskatta sem koma harðast niður á þeim sem minnst hafa á milli handanna.
Miðflokkurinn hefur bent á lausnir en ríkisstjórnin, undir forystu Vinstri grænna, kýs fremur að fara leið skattlagningar og kerfisvæðingar, þenja út báknið sem aldrei fyrr. Og þegar kemur að því að taka upp þessa refsiskatta, sem eru í sérstöku uppáhaldi, kemur í ljós að hugmyndum stjórnarliða hvað varðar skattlagninguna eru engin takmörk sett.
Nei, herra forseti. Við þurfum að koma með úrræði og lausnir sem eru til þess fallnar að við uppskerum raunverulegan árangur. Slíkar lausnir höfum við í Miðflokknum bent á og ég mun koma að því í minni seinni ræðu.