loftslagsmál.
Herra forseti. Þetta er eins og í fluginu. Ef við höldum óbreyttum kúrs er voðinn vís. Jörðin okkar verður óbyggileg. Losun gróðurhúsalofttegunda er háskaleg, svo að vægt sé til orða tekið, og þar eiga sök ríkustu þjóðir heims, 10% heimsbyggðarinnar. Afleiðingar þessa framferðis koma ekki jafn harkalega niður á öllum, langmest niður á fátækustu þjóðum heims. Þannig verður baráttan gegn hamfarahlýnun ekki skilin frá baráttunni gegn ójöfnuði á heimsvísu. Græn jafnaðarstefna, þar sem róttækni, raunsæi og samstaða fara hönd í hönd, er því sterkasta mótefnið gegn hvoru tveggja þessara höfuðmeina mannkyns.
Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi er auðvitað brotabrot af útblæstrinum á heimsvísu en smáríki geta haft afgerandi áhrif, eins og dæmin sanna, með því að taka frumkvæði, sýna gott fordæmi og berjast fyrir breytingum á alþjóðavettvangi. Til að Ísland megi verða fyrirmynd annarra ríkja í loftslagsmálum þarf að taka miklu stærri skref en sitjandi ríkisstjórn hefur boðað, setja metnaðarfyllri markmið og orðum verða að fylgja markvissari aðgerðir.
Herra forseti. Við í Samfylkingunni viljum aðgerðir. Við höfum sett okkur ágeng markmið í efnahagsáætlun um græna atvinnubyltingu þar sem horft er á framtíð Íslands meðal þjóða í nýsköpun, menningu, fjárfestingu og framkvæmdum, allt undir þeim merkjum að mæta lágmarksákvæðum Parísarsáttmálans. Við viljum endurskoða þegar í stað aðgerðaáætlun í loftslagsmálum þannig að stefnt verði að lágmarki að 55% samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 og markmiðið verði bundið í lög. Við leggjum sömuleiðis til að hnykkt verði á sjálfstæði og aðhaldshlutverki loftslagsráðs og að stjórnsýslu loftslagsmála verði ýtt mun framar (Forseti hringir.) með miðlægri ráðuneytisskrifstofu sem hafi fjárhagslega burði og mannafla til að sinna nauðsynlegri greiningarvinnu, samhæfingu verkefna og að þeim verði síðan fylgt eftir. (Forseti hringir.) Nánar má lesa um þessi atriði og mörg fleiri í okkar ágæta riti, Ábyrga leiðin — úr atvinnukreppu til grænnar framtíðar.
(Forseti (ÞorS): Forseti minnir hv. þingmann á að það er líka ábyrgt að standast tímamörk, sem eru tvær mínútur.)