loftslagsmál.
Herra forseti. Ég ætla að byrja á að þakka fyrir þessa umræðu af því að við ræðum loftslagsmál ekki nógu oft í þessum sal og kannski vegna þess er oft dálítið flókið að ræða þessi mál. Ég hjó eftir því í upphafsorðum hæstv. ráðherra að hann nefndi t.d. árin 2021, 2005, 2016 sem þrjú ólík upphafsár ólíkra þátta baráttunnar gegn loftslagsbreytingum. Svona er málaflokkurinn úti um allt, hann er flókinn og hann er of flókinn, hann þarf að vera skýrari.
Annað sem ég hjó eftir hjá hæstv. ráðherra var að hann sagði að það liti allt út fyrir að Ísland nái þeim skuldbindingum sem ríkið hefur tekið sér á hendur gagnvart loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna og í Evrópusambandinu. Þetta er alveg rétt. En þær skuldbindingar eru of litlar. Það lá fyrir þegar samið var um Parísarsamninginn að það þyrfti á fimm ára fresti að auka skuldbindingarnar. Fimmta árið frá Parísarsamningnum er í ár, þannig að 40% markmið stjórnvalda, sem hæstv. ráðherra er ánægður að ríkið muni ná, er bara úrelt. Og hérna erum við í þeirri stöðu að það er úrelt út frá eðlisfræði, ekki einhverjum stjórnmálum þar sem við gerum málamiðlanir, því að við biðjum eðlisfræðina ekki um málamiðlun.
Ríkisstjórnin hefur jafnframt sett fram metnaðarfulla loftslagsstefnu, segir ráðherrann. Það væri nú gott að geta metið það af einhverjum óháðum aðila. Mig langar að nefna frumvarp mitt um aukið aðhaldshlutverk loftslagsráðs, sem ég mælti fyrir í gær, sem snýst akkúrat um það að loftslagsráð geti lagt mat á trúverðugleika áætlana stjórnvalda. Ekki er vanþörf á þegar fjórum mánuðum eftir framlagningu loftslagsáætlunar í vor (Forseti hringir.) var allt í einu hætt við urðunarskatt, sem er ein af aðgerðunum í þeirri áætlun. (Forseti hringir.) 28.000 tonn af koltvísýringi sem puðrast út í loftið þar. Aðgerðinni er ýtt til hliðar. Við höfum margt að vinna en við höfum líka allt að vinna. (Forseti hringir.) Sigur á hamfarahlýnun er leiðin fram á við til að bæta samfélagið.
(Forseti (ÞorS): Enn minnir forseti á tímamörk.)