151. löggjafarþing — 11. fundur,  20. okt. 2020.

loftslagsmál.

[14:54]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ísland nær að standa við skuldbindingar sínar vegna Kyoto, ekki af því að það náði settum markmiðum heldur af því að aðrar þjóðir gerðu það fyrir okkur. Við sömdum við ESB um að fá að vera með þeim í uppgjörinu gagnvart Kyoto-bókuninni. Og svo það sé alveg skýrt; við höfum ekki staðið við skuldbindingar okkar, aðrir gerðu það fyrir okkur.

Fram undan er annað tímabil skuldbindinga, að þessu sinni kennt við París. Það er fyrirsjáanlegt að við munum ekki ná að standa við skuldbindingar okkar, a.m.k. að sinni. Kannski náum við setja í hærri gír þegar fram líða stundir. Ég hef heyrt ýmsa kvarta undan þessum skuldbindingum; að við þurfum ekkert að taka þátt í þessu, við séum með svo mikið af hreinni orku, það sé miklu umhverfisvænna að vera með mengandi stóriðju á Íslandi af því að hún myndi menga miklu meira annars staðar. Staðreyndin er hins vegar sú að mengun kostar sitt. Ég skora á hvern sem er að rökstyðja annað. Þær skuldbindingar sem alþjóðasamfélagið hefur gengist undir snúast um að kostnaðarmeta þá mengun og passa upp á að þeir sem menga borgi. Til þess er kolefnisgjaldið. Sumum finnst það vera allt of hátt og gera lítið úr kostnaðinum vegna mengunar, enda erfitt að sjá áhrifin.

Í þessari umræðu er tvennt sem ég vil vekja athygli á, annars vegar mikilvægi þess að það kosti sitt að menga. Til þess þurfum við að kostnaðarmeta ýmislegt sem ekki hefur haft neinn verðmiða áður, af því að það kemur að skuldadögum. Við þurfum að hafa þennan verðmiða. Við þurfum að horfa á hagkerfið og samfélagið frá stærra sjónarhorni en því sem hrátt kapítal býður upp á. Við getum ekki boðið framtíðarkynslóðum upp á mengun sem við földum og neituðum að glíma við.

Hins vegar er það mýtan um umhverfisvænni stóriðju á Íslandi, sú þröngsýni að mengunin væri meiri annars staðar styður þá skoðun. Við gætum nýtt orkuna okkar og gert sjálfbæran iðnað samkeppnishæfari, fengið hingað nýsköpunina í umhverfisvænni lausnum sem annars yrði knúin mengandi orkuframleiðslu annars staðar í heiminum. Í versta falli munar engu um bjartari framtíð en líklegra er að hún myndi raungerast ef það væri stefna okkar.