151. löggjafarþing — 11. fundur,  20. okt. 2020.

loftslagsmál.

[14:56]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg):

Herra forseti. Við munum ekki ná loftslagsmarkmiðunum, segja hv. þingmenn, og það er þá eins gott að við fáum raunveruleg rök fyrir því.

En ég ætla að fjölyrða aðeins um uppfyllingu Parísarsamkomulagsins, sem er ekki línulegt ferli heldur er það hægur upptaktur í risastóru átaki og flókið samspil leikenda. Það er líka samspil stefnumótunar og lagaumhverfis sem tekur tíma. Það er einnig samspil þess að skilgreina verkefni og að koma leikendunum á hreyfingu. Þetta er ekki hrist fram úr erminni, þannig að það er alveg rökrétt að hægt sé farið af stað og að hraðinn sé aukinn.

Ég vil minna á leikendurna í þessu öllu saman. Hverjir eru þeir? Það er svo fráleitt að tala ávallt um ríkið, eins og ríkið sé höfuðleikandinn. Höfuðleikandinn eru auðvitað samfélagið allt; ríkið, sveitarfélög, fyrirtæki, samtök og einstaklingar. Það bera allir ábyrgð á því að ná þessu markmiði sem búið er að skilgreina. Það tekur okkur níu ár héðan í frá að ná því. Að kalla markmiðin úrelt er bara klisja. Lágmörk eru ekkert úrelt, (Gripið fram í.) þannig að við skulum horfa á þetta raunsætt. Ef við höldum áfram þeim aðgerðaáætlunum sem eru fjármagnaðar og við höfum skilgreint, og ef það er framreiknað kemur í ljós, eins og kom fram hjá hæstv. ráðherra, að við náum 35–45% losunarmarkmiði. Orkuskiptin vega þar þyngst, stefna mótuð, aðgerðaáætlun er fullfjármögnuð og fjármögnun er enn aukin til viðbótar og búið er að setja fram hvata. Ég vil því fá að heyra rökin frá þeim sem halda því fram um að við munum ekki ná þessu.