loftslagsmál.
Herra forseti. Við þurfum að leita úrræða sem bera árangur og sem gætu eftir örfá ár komið í veg að við þyrftum að greiða himinháar sektir vegna vanefnda á Parísarsamkomulaginu. Ég get því verið sammála hv. þingmanni og málshefjanda, Smára McCarthy, þegar hann segir að tíminn líði. Í þessum málum líður tíminn hratt.
Tíminn líður og því miður er árangurinn lítill undir stjórn Vinstri grænna. Þeir þybbast við að hlusta á góðar tillögur sem gætu komið í veg fyrir sektargreiðslur vegna skuldbindinga okkar í loftslagsmálum því að útblástur gróðurhúsalofttegunda á okkar vegum er að aukast, eins og berlega hefur komið fram hér. Ég hef lagt fram tillögur til aukinnar skógræktar til kolefnisbindingar. Ef einungis 2% af landinu væru grædd asparskógi værum við búin að binda allan okkar útblástur. Nóg er af auðnunum hér á landi til að græða upp. Í stað þess gengur allt út á að bíða þess að birki sái sér um auðnir landsins. Birkiskógar eru fallegir og þjóna margvíslegum tilgangi en eru ekki best til þess fallnir að binda kolefni, þeir binda margfalt minna en öflugri trjátegundir.
Hvað með úrganginn? Hvað vilja Vinstri grænir gera við sorpið? Urða það eða senda það til útlanda? Svona er raunveruleikinn á þeirra vakt. Ef sorpið er flutt út þá hverfur það vissulega frá augum okkar og vandamálið hverfur. Og þá ætti okkur að líða betur, ekki satt? Það sorp sem ekki er urðað hér er sent út þar sem það er brennt. Urðun veldur mikilli losun metans sem er lofttegund og er 23 sinnum skaðmeiri sem gróðurhúsalofttegund en koltvísýringur. Þess vegna hef ég lagt ítrekað fram tillögu um byggingu hátæknisorpbrennslustöðvar. Slíkar brennslur eru mun umhverfisvænni en voru fyrir aðeins nokkrum árum síðan. (Forseti hringir.) Sorp er í raun og veru að stórum hluta eldsneyti, enda framleitt mestan part úr (Forseti hringir.) olíu og öðrum brennanlegum efnum. Slíka tillögu hef ég lagt fram á þremur þingum í röð, en ríkisstjórnin kýs fremur að urða sorpið eða flytja það út burt úr augsýn okkar.