151. löggjafarþing — 11. fundur,  20. okt. 2020.

loftslagsmál.

[15:14]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Ég fagna því hve mikið hefur áunnist í þessari umræðu um loftslagsmál. Ég fagna hugmyndum sem koma fram, ég fagna aðhaldi og loftslagsráð hefur það hlutverk, en ég tel að þar megi skerpa á, ég tek undir með hv. þm. Andrési Inga Jónssyni með það.

En ég verð að gera athugasemdir við rangfærslur sem hér hafa komið fram. Tölum skýrt og rétt, segir hv. þm. Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Losun dróst saman milli 2018 og 2019 samkvæmt bráðabirgðatölum Umhverfisstofnunar, þingmaðurinn er þess vegna með gamlar tölur og ber þær hér á borð.

Ísland fór ekki fram á 29% samdrátt heldur er um innleiðingu sameiginlegra reglna ESB að ræða. Þannig kemur í hlut Frakklands að draga úr um 37%, Póllands um 7% og Íslands um 29%. Ísland samdi sig ekki niður á við, hv. þingmaður. Samt sem áður hefur Ísland lagt fram markmið um 40% og sýnt fram á að við ætlum svo sannarlega að ná því.

Hér hefur verið kallað eftir raunverulegum aðgerðum og það er vel. Fulltrúar annarra stjórnmálaflokka hafa lagt fram tillögur og því fagna ég. Það er þó þannig að margar af þeim tillögum eru akkúrat þær sem ríkisstjórnin hefur þegar lagt fram. Ég nefni sem dæmi: Bylting í orkuskiptum sem eru fyrir umhverfið, góð fyrir buddu hvers og eins og líka góð fyrir viðskiptajöfnuð við útlönd, þar eru hvatar, talandi um hvata. Það er bylting í náttúrulegum lausnum, tvöföldun skógræktar, tvöföldun landgræðslu, tíföldun í endurheimt votlendis, þar eru nú aldeilis hvatar. Innleiðing hringrásarhagkerfis, þar eru nú aldeilis hvatar. Rannsóknir í þágu loftslagsmála, nýsköpun í loftslagsmálum, þar eru nú aldeilis hvatar. Grænar fjárfestingar sem nýlega hafa verið kynntar til sögunnar að verði ráðist í, þar verða hvatar. Við vinnum með bændum með hvötum þar sem við borgum fyrir að draga úr losun og binda kolefni, þar eru hvatar og þar eru aðgerðir í gangi.

Ég tek hins vegar undir það sem hér hefur komið fram í umræðunni að við þurfum að setja hertari og metnaðarfyllri markmið og unnið er að því í ráðuneytinu að undirbúa það. Þar getum við öll tekið höndum saman og erum sammála um að gera þurfi betur. Og það er það sem ég tek fyrst og fremst með mér úr þessari umræðu.