151. löggjafarþing — 12. fundur,  21. okt. 2020.

störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P):

Forseti. Ég er með stöðuuppfærslu varðandi mannréttindavernd á tímum Covid. Við áttum fund í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í dag þar sem Ragnheiður Helgadóttir og Bjarni Már Magnússon, prófessorar við lagadeild HR, komu og ræddu það sem við höfum verið að ræða varðandi valdheimildir sóttvarnalæknis, heilbrigðisráðherra og í útvíkkaðra samhengi almenna réttindavernd á tímum veirunnar. Allir sem komið hafa fyrir nefndina og rætt málið eru sammála um að eftirlitsskylda Alþingis sé venjulega mjög rík en sérstaklega rík nú á þessum tímum þegar verið er að víkja til hliðar svona miklu af mannréttindum, miklu af borgararéttindum, til að ná meginmarkmiðum um líf og heilsu, og að Alþingi þurfi að stíga inn varðandi lagafrumvörp. Síðan var tillögu bætt við á fundinum í dag um að samtalið milli ráðherra og þingsins yrði virkara og færi fram í þingsal. Það er ein möguleg útfærsla.

Mig langar að ræða líka þá upplýstu umræðu sem þarf að eiga sér stað, sem sóttvarnaþríeykið hefur bent á að verði að eiga sér stað og sé nauðsynleg, og að ekki eigi að þagga niður í gagnrýnisröddum. Nú eru læknar farnir að benda á ákveðnar brotalamir, m.a. Bryndís Sigurðardóttir, smitsjúkdómalæknir á Landspítalanum, sem segir að tilmæli um að fólk haldi sig heima skjóti skökku við og jafnframt að staðan á Landspítalanum sé betri en venjulega á þessum árstíma. Hún spyr sig hvers vegna fólki sé ekki ráðlagt að vera heima á hverju ári þegar álag á spítalann eykst vegna inflúensu. Hún talar líka um álagið, að 60–70 sjúkrapláss séu upptekin vegna inniliggjandi fólks sem þurfi pláss á hjúkrunarheimilum. Það er nokkuð sem væri gott að fá svör við frá heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra. Hvers vegna skila sér ekki fjármunir í það? (Forseti hringir.) Ef fjármunir eru settir í að koma þessum 60–70 manns á hjúkrunarheimili sem við vitum að eiga að vera þar en ekki á spítalanum, (Forseti hringir.) gæti það skapað enn meira svigrúm fyrir (Forseti hringir.) spítalann, sem þegar er gott, og gert okkur kleift að grípa þessar aðstæður miklu betur en við gerum nú þegar. (Forseti hringir.) En þá vantar líka hjúkrunarfræðingana. Þannig að það má líka benda á það (Forseti hringir.) hve illa farið var með þá (Forseti hringir.) í síðustu kjaradeilu.

(Forseti (SJS): Ég minni á tímamörk.)