151. löggjafarþing — 12. fundur,  21. okt. 2020.

störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að nota tímann og ræða aðeins um plast, þá frábæru uppfinningu. Aftur á móti er vandamálið okkar ofnotkun á plasti. Við erum farin að nota allt of mikið af plasti, bara í einnota umbúðir. Ekkert lát virðist vera á framleiðslu plasts enda tvöfaldaðist árleg heimsframleiðsla á árunum 2000–2017. Plastúrgangur er því að verða eitt af okkar allra stærstu umhverfismálum og það er útlit fyrir að árið 2050 gæti verið meira af plasti en fiski í sjónum. Þetta er auðvitað hrollvekjandi staðreynd. Norrænir umhverfisráðherrar hafa nú lagt til að gerður verði nýr alþjóðasamningur til að draga úr plastmengun í hafi og er það vel. Í skýrslu sem unnin var fyrir norrænu ráðherrana er lögð áhersla á slíkan alþjóðasamning sem miðar þá að því að virkja stjórnvöld, atvinnulíf og neytendur í sameiginlegu átaki til að koma í veg fyrir þessa miklu mengun Í skýrslu okkar og áætlun á Íslandi um plast kemur í ljós að umbúðaplast er um 47 kíló á hvern íbúa á ári. Það gera um 165.000 tonn. Aðeins 43% af þessu plasti skilar sér til endurvinnslu.

Virðulegur forseti. Við verðum hreinlega að taka okkur á í þessu. Þá er líka spurning: Hvar er verið að endurvinna plastið? Meiri hlutinn af öllu plasti, ef ekki nánast allt plast, sem fer til endurvinnslu á Íslandi er flutt til útlanda. Við höfum komið okkur upp ákveðnu fyrirkomulagi til að ýta undir endurvinnslu með Úrvinnslusjóði en þar er hluti af gjaldinu flutningsjöfnun og miðar að því allt plast eigi að fara til útflutnings.

Ég velti því fyrir mér, virðulegur forseti, hvort ekki sé einfalt fyrir okkur hér í þessum sal og hæstv. umhverfisráðherra að breyta þessu fyrirkomulagi þannig að til verði hvati til að endurvinna plast hér heima og hvetja þannig til nýsköpunar í hringrásarhagkerfinu hér á landi.