151. löggjafarþing — 12. fundur,  21. okt. 2020.

störf þingsins.

[15:33]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Það hefur náttúrlega ekki farið fram hjá neinum að það er þungur róður hjá mörgum rekstraraðilum í samfélaginu, hjá einyrkjum og ekki síður listamönnum. Viðreisn hefur reynt að gera sitt besta til að halda málflutningi þeirra á lofti hér í þingsal og komið með tillögur um hvað betur mætti fara, eins og til að mynda að fresta hækkun áfengisgjaldsins, sem fjármálaráðherra og ríkisstjórnin hefur boðað, sem leggur m.a. þungar byrðar á veitingastaði sem nú róa lífróður.

Mig langar núna að beina sjónum að STEF, sem innheimtir gjöld af þeim sem reka veitingastaði, verslanir, hjúkrunarstofur, hótel og fleira, sem á í miklum erfiðleikum núna. Mínar heimildir herma að strax núna á þessu ári sé tekjufall vegna tónleika 70% hjá STEF. Það er lækkun í bakgrunnstónlist um allt upp í 30%. Núna í desember, þegar er alla jafna stærsta úthlutunin til tónlistarhöfunda og textahöfunda í gegnum STEF, er líklegt að sú fjárhæð verði mun lægri. Við vitum það öll og heyrum það á tónlistarfólki og listafólki að reksturinn er mjög þungur.

Þess vegna teljum við í Viðreisn brýnt að hæstv. fjármálaráðherra og eftir atvikum hæstv. menntamálaráðherra skoði það sérstaklega hvernig hægt er m.a., þótt það séu ekki einhver risastór skref en það eru þýðingarmikil skref og stór skref í hinu stóra samhengi, að hjálpa STEF og þar með veitingahúsum og tónlistarfólki, að halda annars vegar uppi rekstri veitingahúsa og bara, að halda þeim gangandi, og um leið að tryggja að ekki verði tekjufall hjá tónlistarhöfundum og tónlistarfólki þegar kemur að flutningi tónlistar.

Það skiptir miklu máli að reyna að gera allt sem hægt er, að við tökum stór og djörf skref og að við hugsum í lausnum, búum ekki til óþarfaflækjur. Það er hægt með einföldum aðgerðum (Forseti hringir.) og ekki síst núna á þessum tíma að mæta tekjufalli hjá tónlistarfólki en um leið að tryggja að það fái réttmætar tekjur. (Forseti hringir.) Um leið léttum við undir hjá þessum einyrkjum, veitingahúsum og hótelum sem eiga í miklum rekstrarerfiðleikum eins og við vitum, kæri forseti.