aðgengi hreyfihamlaðra að mannvirkjum.
Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um að biðja um skýrslu um mikið réttlætismál og mikið frelsismál, aðgengi hreyfihamlaðra að byggingum. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að fá þessar upplýsingar fram til að sjá hvort einhvers staðar sé pottur brotinn í þessum málaflokki, sem það vissulega er. Þá held ég að slíkar upplýsingar geti hjálpað okkur við að bæta úr þeim annmörkum sem eru til staðar. Vil ég þakka þingheimi fyrir að taka svona vel í þessa beiðni og líka hvað það voru margir með mér á henni af því að þetta er algjörlega þverpólitískt mál sem við erum öll sammála um að við viljum hafa í lagi.