151. löggjafarþing — 12. fundur, 21. okt. 2020.
stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
200. mál
Herra forseti. Við í Samfylkingunni greiddum atkvæði gegn frumvarpinu um greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti. Við töldum á því máli vera ýmsa galla og vildum leggja meiri áherslu á að gera fyrirtækjum kleift að halda ráðningarsambandi við starfsmenn frekar en að styrkja þau til að segja þeim upp. Við munum því ekki styðja þessar breytingar en við sitjum hjá við afgreiðslu málsins.