151. löggjafarþing — 12. fundur, 21. okt. 2020.
stuðningur úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti.
200. mál
Virðulegur forseti. Þingflokkur Pírata studdi ekki svokallaða uppsagnarleið ríkisstjórnarinnar og við munum því heldur ekki styðja þessa viðbót við uppsagnarleiðina. Við lítum ekki svo á að það eigi að auðvelda fyrirtækjum að segja upp fólki, sama hverrar stærðar þau eru og sama í hvaða formi það verður, þannig að við segjum nei.