151. löggjafarþing — 14. fundur, 22. okt. 2020.
geðheilbrigðismál.
Virðulegi forseti. Verklagið er með þeim hætti að ef það er bráðavandi á barnið ekki að þurfa að bíða. Það er skilningur allra í kerfinu. Það eru þau skilaboð sem ég fæ frá framlínustarfsfólki að það sé hugsunin. Og ég veit að ef það er einhvers staðar meðvitund um mikilvægi þess að forgangsraða börnum í bráðum vanda þá er það hjá því fólki sem veitir þessa þjónustu.