kolefnisgjald.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir samtalið í dag um kolefnisgjöld. Þau eru sett á til að reyna að breyta hegðun, til að reyna að fá fólk til að fara úr því að nota eldsneyti sem hefur í för með sér að menga og valda loftslagsbreytingum. Þess vegna eru kolefnisgjöld mikilvæg. Þar sem þessi skýrsla dregur fram er hins vegar það að gjaldið þyrfti í raun að vera mun hærra til þess að það myndi bíta betur. Það eru meginskilaboðin í þessari skýrslu.
Það er vissulega farið inn á það að skattlagning sem þessi getur bitnað mismunandi á fólki, það er alveg hárrétt. En það fer allt eftir því hvernig unnið er að því að reyna að gera efnaminna fólki kleift að nýta sér önnur úrræði, nýta sér það að geta farið yfir í að nýta endurnýjanlegt eldsneyti, kaupa farartæki til þess o.s.frv. Markaðurinn í þessu er allur að breytast. Það eru að koma fleiri notaðir bílar inn á markaðinn o.s.frv.
Meginatriðið er það að kolefnisgjöldin eiga að breyta hegðun. Þessi ríkisstjórn hefur hækkað þau til að reyna að hafa áhrif á þessar breytingar. Við höfum líka sett inn hvata til að beina fólki þá leið að nota umhverfisvænni fararskjóta, sem snýr bæði að almenningssamgöngum og því að geta farið um gangandi, hjólandi o.s.frv. Þannig að þessi skýrsla er alls ekki áfellisdómur. Hún snýst fyrst og fremst um það að til að kolefnisgjald bíti vel þá þarf það í raun að vera hærra en það er í dag.