kolefnisgjald.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ráðherrann nefndi einmitt réttilega að gjaldið hafi hækkað í tíð þessarar ríkisstjórnar og það hefur svo sannarlega gert það. Þegar þessi ríkisstjórn tekur við er gjaldið á ársgrundvelli 3,5 milljarðar. Það er rúmir 6 milljarðar á þessu ári.
Þessi skýrsla staðfestir nákvæmlega það sem við Miðflokksmenn höfum alltaf haldið fram, að þessari skattlagningu er ekki jafnað niður á landsmenn með sanngjörnum hætti. Það er alveg klárt. Skýrslan staðfestir það. Það er ekki forsvaranlegt að leggja skatt á almenning með þessum hætti þegar það bitnar verst á tekjulágu fólki. Það verður að segjast alveg eins og er, hæstv. ráðherra.
Það segir á bls. 13 í skýrslunni: „Ekki liggja fyrir góð gögn um eldsneytisnotkun fyrirtækja hér á landi …“ Hvers vegna vísar ráðuneytið í þessa skýrslu sem grunngagns um árangur af skattlagningu á eldsneyti ef fyrir liggur staðfesting þess efnis að ekki liggi fyrir góð gögn (Forseti hringir.) um eldsneytisnotkun fyrirtækja hér á landi? Ég verð að segja það, hæstv. ráðherra, að mér finnst þetta bara lélegur málatilbúnaður að rökstyðja mál sitt (Forseti hringir.) með skýrslu sem gengur þvert á það sem stjórnvöld hafa lagt upp með.