stjórnarskipunarlög.
Forseti. Við ræðum hér frumvarp stjórnlagaráðs um breytingu á stjórnarskrá með þeim breytingum sem gerðar höfðu verið í þinglegri meðferð fram að árinu 2013. Þá var málið sett ofan í skúffu þar sem það hefur legið síðan. Það hefur nú verið dregið upp og lagt fram á þingi. Það var fyrst gert fyrir tveimur árum í þeim búningi að hægt væri að leggja það fram strax, t.d. eftir næstu kosningar ef til valda komast þeir flokkar sem vilja leggja málið fram strax og klára það. Þetta mál er tilbúið. Málið er grundvallað á frumvarpi stjórnlagaráðs með breytingum sem þingið gerði, sumum góðum, sumum ekki. Það mun að lokinni þessari umræðu fara til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þar sem ég sit ásamt fleirum. Þar verður málið unnið málefnalega og faglega. Það er eitt af þeim forgangsmálum sem þarf að vinna.
Almenn samstaða virðist vera um það, alla vega af hálfu þjóðarinnar og forseta Íslands, að þetta sé grundvöllurinn að nýrri stjórnarskrá samkvæmt þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012, það er orðalagið sem notað var. Forsætisráðherra hefur líka sagt að þær breytingar á stjórnarskránni sem lagðar hafa verið fram, sama hvort það var gert af þingmönnum, eins og í þessu tilfelli, eða henni sjálfri sem forsætisráðherra, þurfi að fá efnislega meðferð á þingi og í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Það verður gert.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, lýsir stjórnarskrárstarfinu sem hófst með þjóðfundinum 2010 sem því víðfeðmasta og lýðræðislegasta starfi að stjórnarskrárritun sem sagan kunni frá að greina. Eina leiðin til að vera fullviss um réttmæti þeirra orða Vigdísar er að bera saman hvernig stjórnarskránni er venjulega breytt og hvernig starfið var sem unnið var frá 2010 til 2013. Það er lýðræðislegra að halda þjóðfund um að endurskoða stjórnarskrána og spyrja 950 manna hóp kjósenda, valinn af handahófi til að sýna þverskurð þjóðarinnar, hverju þeir vilja breyta. Hverju viljið þið breyta í stjórnarskránni? Það er lýðræðislegra að gera það en það sem er gert venjulega, að einhverjir fáir ráðamenn fái að ráða því hverju á að breyta. Það er lýðræðislegra að spyrja 950 manna hóp, valinn af handahófi úr hópi allra landsmanna þar sem þeir koma saman og ræða hverju þeir vilja breyta í stjórnarskránni. Það er lýðræðislegra að boða til þjóðfundar um hverju við eigum að breyta. Það var gert 2010.
Það er lýðræðislegra að þingið skipi síðan stjórnarskrárnefnd sem tekur saman niðurstöður þjóðfundar almennings. Það er lýðræðislegra en að ráðherra skipi einhverja nefnd til að útfæra tillögur ráðamanna. Það er lýðræðislegra, þegar þjóðkjörið stjórnlagaþing var ógilt af Hæstarétti, að Alþingi skipi þá í staðinn stjórnlagaráð sem starfar á opnum fundum og tekur við ábendingum almennings. Það er lýðræðislegra en að gera bara eins og venjulega og láta nefnd, sem skipuð var af forsætisráðherra, skrifa í leyni leikreglurnar fyrir stjórnmálamenn. Það væri enn þá lýðræðislegra ef kosningunum hefði verið þannig háttað að Hæstiréttur hefði ekki dæmt þær ólöglegar og þjóðin hefði kosið á þetta stjórnlagaþing, en fyrst þær voru dæmdar ekki nógu lýðræðislegar, og því fylgt samkvæmt leikreglum lýðræðisins, þá er lýðræðislegra að skipa stjórnlagaráð í staðinn fyrir að ráðherra skipi nefnd sem vinnur í leyni að leikreglunum.
Það er lýðræðislegra að skipa stjórnlagaráð sem vinnur fyrir opnum tjöldum og tekur við athugasemdum frá almenningi. Og það er lýðræðislegra að spyrja kjósendur í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu hvort þeir vilja nýja stjórnarskrá grundvallaða á frumvarpi stjórnlagaráðs. Það var orðalagið. Og það er lýðræðislegra að spyrja landsmenn að því í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu en að spyrja kjósendur bara alls ekki að því. Það er lýðræðislegra að fara í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Svo er það gríðarlega ólýðræðislegt að minni hluti þingmanna, fulltrúar minni hluta kjósenda, leyfi sér að beita málþófi til að stöðva vinnu að lýðræðislegasta stjórnarskrárferli í sögu Íslands, og jafnvel heimsins, ef við hlustum á fyrrverandi forseta vorn, Vigdísi Finnbogadóttur. Síðan hefði málið getað farið í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu til þjóðarinnar, en var stöðvað af fulltrúum minni hluta kjósenda á Alþingi. Það er það eina ólýðræðislega við þetta stjórnarskrárferli sem hófst árið 2010.
Og nú hefur komið skýrt ákall um að þau ólýðræðislegu vinnubrögð verði ekki í boði. Nú tökum við upp úr skúffunni frumvarp stjórnlagaráðs með þeim breytingum sem Alþingi hefur gert, það fer inn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og þar geta allir þingmenn og einnig almenningur komið að og gert breytingartillögur til baka, þar sem eitthvað þarf að laga. Sumar breytingarnar eru til batnaðar, um það eru margir sammála sem sátu í stjórnlagaráði og fleiri, og þær þurfa þá að fá að halda sér. Ef gera á breytingar til baka þar sem fyrri stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd takmarkaði réttindi almennings þá þarf að opna á það. Það er þá hægt að gera núna þegar málið er komið til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Ég hvet þá sem hafa nógu mikinn áhuga og þekkingu á málinu til að koma með tillögur að breytingum sem þingmenn geta þá flutt til að laga málið og færa það í það horf að réttindi almennings séu ríkari en ekki skertari við meðferð Alþingis á málinu.
Stjórnarskrárstarf getur verið lýðræðislegra en vinnan sem unnin var 2010–2013. Það er hægt að hafa hana lýðræðislegri, t.d. ef tekist hefði að fá það fram að þjóðin kysi á stjórnlagaþing. Það hefði verið lýðræðislegra. En fyrir utan þetta málþóf þingmanna sem voru fulltrúar minni hluta kjósenda þá er stjórnarskrárstarfið sem hófst á þjóðfundinum 2010 það lýðræðislegasta í Íslandssögunni. Það er kominn tími til að Alþingi klári sinn hlut í stjórnarskrárstarfinu sem þjóðin hóf á þjóðfundinum. Forseti Íslands getur svo sett nýja stjórnarskrá í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu, sé það krafa kjósenda þá fáum við bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin er og á að fá að vera stjórnarskrárgjafinn.
Að því stefnum við með þessu máli. Ég get ekki séð hvernig menn ætla að stöðva að þetta mál sé unnið málefnalega. Forsetinn er búinn að stilla því þannig upp þannig að það væri þinginu til vansa að stoppa það. Mér heyrist að forsætisráðherra sé alla vega hlynntur því að málin, m.a. hennar, séu unnin málefnalega í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, þannig að ég hef vonir um að sú vinna geti skilað þessum málum úr nefnd og til málefnalegrar umræðu hérna á þingi. Þeir sem ætla að standa í vegi fyrir því eru þá í krafti minni hluta kjósenda aftur að brjóta á þeim rétti þjóðarinnar að fá að segja álit sitt á nýrri stjórnarskrá. Það er ekki í boði.
Svo ég endi á jákvæðum og bjartsýnum nótum þá er þetta sú vinna sem við erum að fara af stað með hér og ég hvet almenning til að taka þátt. Ég vil sérstaklega þakka þeim sem skrifuðu undir stuðningsyfirlýsingu um að halda áfram og virða þjóðarviljann eins og hann birtist í þjóðaratkvæðagreiðslu 2012 og lyfta málinu á þann stað að nú hefur það aftur slíkt pólitískt vægi að það mun kosta þá pólitískt mjög mikið sem ætla að standa í vegi fyrir því, sér í lagi ef kjósendur þeirra vilja nýja stjórnarskrá. Þetta er mikilvægt og ég hvet alla landsmenn sem áhuga hafa til að koma með breytingartillögur, sér í lagi þá sem eru á móti málinu í heild: Komið með breytingartillögur. Fáið þingmenn til að flytja þær. Vinnum málið málefnalega og skilum því svo til þjóðarinnar fyrir næstu kosningar.