151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum: Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn á þskj. 64, um úthlutun byggðakvóta, á þskj. 68, um innflutning á laxafóðri, og á þskj. 69, um laxa- og fiskilús, allar frá Ingu Sæland. Frá dómsmálaráðherra við fyrirspurn á þskj. 175, um einangrun fanga, og á þskj. 176, um agaviðurlög fanga, báðar frá Helga Hrafni Gunnarssyni. Frá félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn á þskj. 71, um einstaklinga með greindan hegðunarvanda eftir heilaskaða, frá Hönnu Katrínu Friðriksson, og á þskj. 151, um biðtíma hjá Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins, frá Önnu Kolbrúnu Árnadóttur.