málefni öryrkja.
Herra forseti. Stjórnvöld eiga ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlæti. Þetta sagði hæstv. forsætisráðherra í þessum stól árið 2017, þá þingmaður í stjórnarandstöðu og ég er henni hjartanlega sammála. Engu að síður býr stór hópur öryrkja og aldraðra við skammarlega lág laun. Tæplega fjórðungur öryrkja býr við skort á efnislegum gæðum samkvæmt rannsóknum Hagstofunnar og bilið milli lífeyris og lágmarkslauna heldur áfram að breikka. Þannig hefur biðin eftir réttlæti sem hæstv. forsætisráðherra talaði um árið 2017 bara lengst. Ekki nóg með það. Nú þegar Öryrkjabandalag Íslands stendur fyrir kraftmikilli baráttu fyrir bættum kjörum berast kaldar kveðjur frá ríkisstjórn Íslands, pillur frá fjármálaráðherra sem sakar talsmenn öryrkja um ábyrgðarleysi og hótar því að fjölgun fólks með skerta starfsgetu verði látin bitna á þeim sem nú þegar eru á örorkulífeyri. Þetta dæmir sig sjálft.
Ég vil því spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort þetta sé í alvöru stefna ríkisstjórnar Íslands. Er hæstv. forsætisráðherra sammála þeim orðum fjármálaráðherra að talsmenn öryrkja grafi undan getu okkar til að styðja við þá sem eru í mestri þörf, eins og fjármálaráðherra sagði, eða treystir hún sér til að taka undir með okkur í Samfylkingunni um að öryrkjar eigi betra skilið en þennan skæting? Er hún ekki sammála eigin orðum um að stjórnvöld eigi ekki að biðja fátækt fólk á Íslandi að bíða eftir réttlæti? Ég spyr einnig hvort hún komi ekki með okkur í það að bretta upp ermarnar núna, draga úr skerðingum og tryggja að lífeyrir almannatrygginga fylgi þróun lægstu launa samkvæmt lífskjarasamningum.