151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

málefni öryrkja.

[15:08]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Já, við hv. þingmaður ætlum þá bara að vera ósammála um þá hluti, því að ég held að það sé einmitt mikilvægt að við ræðum þessi mál annars vegar út frá markmiðunum, sem ég tel að við hv. þingmaður séum sammála um, þ.e. að við viljum auka jöfnuð í samfélaginu og teljum það vera mikilvægan hluta af velgengni íslensks samfélags hversu mikill jöfnuður hefur í raun verið og við eigum að hafa það í huga í öllum okkar aðgerðum. En ég held að við þurfum líka að horfa á gögnin sem liggja undir. Til að mynda þegar við skoðum tekjusöguna, sem ég vitnaði í áðan, þá sýnir hún mjög glögglega að það er ekki rétt að mínu viti að tala um aldraða og öryrkja sem einn hóp. Þar hefur tekjuþróun verið mjög ólík milli hópa, en ekki síst er eignastaða þessara hópa mjög ólík. Þess vegna held ég að við þurfum að ræða þessa hópa aðskilið. Við þurfum að horfa á stóra markmiðið: Hvernig getum við náð auknum jöfnuði? Ég nýtti mitt fyrra svar hér til að benda á allar þær aðgerðir sem þegar hefur verið ráðist í og fleirum eigum við von á, eins og hæstv. félags- og barnamálaráðherra hefur boðað. (Forseti hringir.) En ég tel líka að það sé mikilvægt að við horfum á þær aðgerðir út frá (Forseti hringir.) því hvernig við viljum þróa þetta kerfi til framtíðar. Ég held að Alþingi megi ekki skorast undan því verkefni sem fram undan er.