umbætur á lögum um hælisleitendur.
Virðulegur forseti. Nýlega heyrðum við fréttir af því að vísa eigi fjölskyldu úr landi til Senegals. Í þessari fjölskyldu er m.a. sex ára einstaklingur sem fæddist hér og hefur verið hér alla sína ævi. Foreldrarnir eru ekki með dvalarleyfi og þess vegna verður allri fjölskyldunni vísað úr landi. Eins og ég hef fullyrt áður er þessi einstaklingur í mínum huga einfaldlega Íslendingur. Við erum að senda Íslending úr landi, einstakling sem fæddist hér og hefur aldrei verið annars staðar en hér, en lögin okkar líta ekki þannig á málið.
Ég hef spurt hæstv. dómsmálaráðherra, þennan eins og fleiri, út í útlendingamál. Ávallt er viðhorfið það að ef hlutirnir standist lög sé þetta allt saman í góðu lagi. Nú veit ég að hæstv. forsætisráðherra gæti svarað því að þetta málefni væri á hendi dómsmálaráðherra, sem það er. Ég spyr hæstv. forsætisráðherra í þeirri von að forsætisráðherra hafi eitthvað að segja um þau frumvörp sem eru lögð fram af ríkisstjórninni sjálfri. Hér kemur það fyrir að lög um útlendinga, eða breytingar þar á, eru lögð fram af dómsmálaráðherra, sem ég hafði ekki áður trú á að Vinstri græn myndu leggja fram, miðað við orð hæstv. forsætisráðherra í fortíðinni og þess ágæta þingflokks almennt. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra, ekki hvort hún hyggist sjálf leggja fram hitt eða þetta frumvarp heldur hvort hún muni beita sér fyrir því í ríkisstjórn að gerðar verði umbætur í þessum málaflokki umfram það að laga tæknileg skilvirknivandamál, þannig að þegar einstaklingur fæðst á Íslandi, elst upp á Íslandi og er sex ára Íslendingur og við ætlum að senda hann úr landi, þá séu lögin skilningsríkari en svo að aðrir hæstv. dómsmálaráðherrar komi hingað upp og láti eins og það sé bara fullkomlega eðlilegt.