bóluefni gegn Covid-19.
Virðulegur forseti. Ég vil fullvissa hv. þingmann um að þessi mál eru í mjög yfirgripsmikilli skoðun í ráðuneytinu og hjá sóttvarnalækni og við viljum tryggja sem allra liprasta og sanngjarnasta framkvæmd á þessu. Ég þakka þingmanninum fyrir að vekja máls á þessu. Og af því að þingmaðurinn nefnir inflúensubólusetningu á þessum vetri þá er það rétt sem kemur fram í máli þingmannsins að eftirspurnin reyndist umtalsvert meiri en venjulega. Það á rætur að rekja til þess að við erum meðvitaðri um sjúkdóma og veirur en alla jafna. Það voru fleiri sem óskuðu eftir bólusetningu við inflúensu en gerist og gengur. Ég held að full ástæða sé til þess að við horfum sérstaklega til þess að tryggja magn fyrir inflúensubólusetningu næsta vetur, þ.e. 2021–2022, og ekki er ráð nema í tíma sé tekið með það.