samkeppnisstaða stóriðju á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég vil við þetta tækifæri fyrst óska hæstv. iðnaðarráðherra til hamingju með daginn, þó að ég sjái hana ekki hérna, hún er væntanlega í hliðarherbergi. En ég vil velta upp við hæstv. ráðherra stöðu stóriðjunnar á Íslandi og samskiptum sumra þeirra félaga við stærsta orkusala landsins, Landsvirkjun. Þann 5. febrúar síðastliðinn var sagt frá því á heimasíðu Stjórnarráðsins að samið hefði verið við þýska fyrirtækið Fraunhofer um að gera úttekt á samkeppnishæfni stóriðju á Íslandi. Áætlað var að úttektinni lyki með skýrslu til stjórnvalda fyrir lok maí. Nú stöndum við hér í nóvember, fimm mánuðum eftir áætluð skil, og mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um hvenær skýrslunnar sé að vænta.
Á meðan beðið hefur verið eftir þessari skýrslu hafa stöðugar fréttir borist af erfiðum samskiptum tiltekinna félaga og Landsvirkjunar þar sem sýn aðila á það hvar vandamál liggja er vægast sagt ólík. Það vakti sérstaklega athygli þegar bæði álverið í Straumsvík og Norðurál með stuttu millibili vísuðu málum vegna samskipta og samninga við Landsvirkjun til Samkeppniseftirlitsins.
Í þeirri stöðu sem uppi er í efnahagslegu tilliti er vont að horfa til þess að ein af þremur meginstoðum gjaldeyrissköpunar sé í jafn mikilli óvissu og raunin er. Við fáum af því fréttir að eigendur álversins í Straumsvík horfi til þess að álverinu verði lokað ef ekki kemst á talsamband sem skilar niðurstöðu á milli þeirra og Landsvirkjunar. Á sama tíma kemur fram að Norðurál á Grundartanga telji sig ekki ná talsambandi við fulltrúa Landsvirkjunar varðandi það m.a. að undirbyggja 40 milljarða framkvæmd sem skilar verulegum fjölda starfa á framkvæmdatímanum og 40–50 langtímastörfum.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hver er staðan á skýrslunni um samkeppnisstöðu stóriðju á Íslandi? Hvenær er hún væntanleg? Í öðru lagi: Hvað sér hæstv. ráðherra fyrir sér sem næstu skref stjórnvalda gagnvart stóriðjufyrirtækjunum sem meta stöðu sína greinilega mjög ótrygga?