151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

samkeppnisstaða stóriðju á Íslandi.

[15:33]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir afmælisóskir úr þessum ræðustól. Það er rétt að við vorum að vona að þessi vinna tæki skemmri tíma en raun ber vitni. Hins vegar er stundvísum Þjóðverjum ekki um að kenna heldur kannski frekar því að það tók lengri tíma en við áætluðum að fá frá fyrirtækjum mikilvægar upplýsingar sem Fraunhofer hefur þurft að hafa til þess að geta unnið þá vinnu sem ég óskaði eftir af fyrirtækinu. Þetta er í fyrsta sinn sem við förum í slíka óháða úttekt og það verður mjög gott að geta tekið þá umræðu út frá því sem þar kemur fram. Ég er að vonast til þess að ég geti farið með skýrsluna inn í ríkisstjórn á föstudaginn, með almennum fyrirvörum um að ekkert komi upp á, en ég geri ráð fyrir því að geta farið með hana inn í ríkisstjórn á föstudaginn.

Ég tek undir með hv. þingmanni, ég hef líka áhyggjur af stöðunni almennt. Þessi stóru fyrirtæki eru okkur hér á Íslandi mjög mikilvæg. Stóriðja er mikilvæg stoð í íslensku hagkerfi og ég vil auðvitað að við séum með umhverfi þar sem þau sjá hag sinn í því að vera hér áfram. Varðandi Straumsvík sérstaklega þá leyfi ég mér að velta því upp að hvaða leyti megi lesa í þetta tal sem stefnu Rio. Það er fyrirtæki sem hefur selt eða lokað öllum álverum í Evrópu og kannski má segja að við séum þá síðust, sem segir meira til um hver staðan er hér frekar en eitthvað annað.

Það er auðvitað til mjög margra þátta að líta og ég held að við þurfum að taka það heilt yfir til skoðunar. Við erum hér með Landsnet sem rekur flutningskerfið og það þarf að líta til þess. Það þarf að líta til svo margra annarra þátta en raforkuverðsins eins og sér. En ég segi bara mjög skýrt: Að sjálfsögðu vil ég að við séum hér með samkeppnishæft umhverfi fyrir þessi fyrirtæki eins og önnur, enda eigum við mjög mikið undir því.