151. löggjafarþing — 15. fundur,  4. nóv. 2020.

samkeppnisstaða stóriðju á Íslandi.

[15:36]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið og fagna því sérstaklega að skýrslan sé væntanleg núna öðru hvorum megin við helgina. Það er mjög ánægjulegt að heyra. Mig langar í framhaldinu af svörum hæstv. ráðherra að spyrja ráðherra hvað hún sjái fyrir sér sem næstu skref stjórnvalda verði niðurstaða skýrslunnar sú að samkeppnisstaða sé jöfn þrátt fyrir allt miðað við samanburðarlöndin. Er hæstv. ráðherra þá í raun að horfa til þess að þessi slagur sé tapaður, ef svo má segja? Að við séum komin inn í ferli þar sem við horfum á þessi stóriðjufyrirtæki víkja af íslenskum markaði? Og hvað segir það þá í rauninni um samkeppnisstöðuna sem þessum fyrirtækjum er boðið upp á ef það raungerist að þessu síðasta álveri Rio Tinto í Evrópu verði lokað? Erum við þá ekki að horfa til þess að samkeppnisstaðan, t.d. gagnvart Kínamarkaði hvað álframleiðslu varðar í Evrópu, er gjörskökk, m.a. með tilliti til kostnaðar sem leggst á þessa framleiðslu (Forseti hringir.) hjá okkur út frá ýmsum kolefnis- og umhverfissjónarmiðum, svo að dæmi séu tekin?