samkeppnisstaða stóriðju á Íslandi.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Herra forseti. Fyrst vil ég að það sé alveg skýrt, og mér finnst mikilvægt að við gefum okkur það og tölum út frá því, að það eru auðvitað sameiginlegir hagsmunir þessara fyrirtækja, Landsvirkjunar og okkar sem samfélags að þetta eru verðmætustu viðskiptavinir Landsvirkjunar. En varðandi Kínamarkað, sem hv. þingmaður kom sérstaklega inn á og ég ætlaði að koma inn á í seinna svari mínu, þá er það hárrétt að við höfum séð að framleiðsla á áli hefur flust að verulegu leyti til Kína. Þar mengar slík framleiðsla tugfalt á við það sem hún gerir hér. Ég hef saknað þess mjög, af því að við erum jú með rödd en hún er ekki eins sterk og til að mynda ef Evrópa myndi beita sér, að fá ekki fram hvaða skoðun við höfum á því að nánast öll þessi framleiðsla sé að fara úr þessari heimsálfu og yfir til Kína þar sem hún mengar miklu meira en hér. Að mínu viti höfum við sem álfa verið sofandi á verðinum. Og það má alveg spyrja, við höfum lagt mikla áherslu á það að (Forseti hringir.) skattleggja hér iðnað sem mengar, en við hefðum kannski frekar átt að beita okkur meira í þá veru.